Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Kynningarfundur vegna fyrirhugaðs rammasamningsútboðs Stafrænnar heilsu

30. júní 2026

09:00 til 10:00

Hlekkur á fundinn verður sendur er nær dregur

Stafræn heilsa, í samstarfi við Fjársýsluna, boðar til kynningarfundar vegna fyrirhugaðs rammasamningsútboðs á sérfræðingum í hugbúnaðarþróun, rekstri og ráðgjöf.

Á fundinum verður farið yfir:

  • Almenna kynningu á samningsútboðinu,

  • Hæfiskröfur, hverjir geta sent inn tilboð (fyrirtæki og sjálfstætt starfandi),

  • Hlutverk innan rammasamningsins,

  • Val inn í samninginn og mat á tilboðum,

  • Fyrirkomulag kaupa innan samningsins, þ.m.t. bein kaup og örútboð,

  • Skila- og frammistöðumat á samningstíma.

Fundurinn verður haldinn í fjarfundi (Teams) 30. júní 2026 kl. 9:00–10:00.

Á fundinum sjálfum og að fundi loknum (til 12:00 samdægurs) gefst þátttakendum kostur á að senda inn athugasemdir og tillögur til úrbóta í gegnum form sem sent verður til skráðra þátttakenda.

Reynt verður að svara sem flestum spurningum á fundinum. Þeim spurningum sem ekki verður hægt að svara á fundinum verður svarað eins fljótt og auðið er.

Allar spurningar og svör verða send til þátttakenda og birt nafnlaust.

Vinsamlegast athugið að útboðsgögnin eru í vinnslu og bjóðendur munu fá að kynna sér lokaafurðina þegar útboðið verður auglýst.

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500