Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Fullt hús á Nýsköpunardegi hins opinbera 2026

7. maí 2026

Mikil áhersla á nýsköpun, samstarf og umbætur í ríkisrekstri á fjölmennum viðburði Fjársýslunnar

Nýsköpunardagur hins opinbera 2026 (NHO26) fór fram 6. maí sl. á vegum Fjársýslunnar en tæplega hundrað manns tóku þátt í deginum. Þema dagsins var heildstæðar umbætur í opinberum rekstri, með sérstakri áherslu á hvernig nýsköpun og markviss innkaup geta stuðlað að betri þjónustu við almenning og atvinnulíf.

Ingþór Karl Eiríksson fjársýslustjóri bauð gesti velkomna áður en fjölbreytt dagskrá hófst með fyrirlestrum, dæmum úr framkvæmd og afhendingu Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026.

Opinber nýsköpun lykill að betri þjónustu

Í setningarávarpi sínu lagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra áherslu á mikilvægi nýsköpunar í opinberum rekstri og sagði meðal annars opinbera nýsköpun vera „áherslusvið sem við viljum vinna að og viljum byggja upp stuðning fyrir svo við sameiginlega getum náð betri árangri“.

Lykilerindi dagsins flutti Hessel van Oorschot, forstöðumaður hollenska samstarfsvettvangsins SiR Intergov fyrir nýskapandi innkaup. Þar fjallaði hann um mikilvægi þess að opinberir aðilar leggi áherslu á að greina áskorunina sem þarf að leysa í stað þess að skilgreina útfærsluna of þröngt frá upphafi. Með þeirri nálgun skapast svigrúm fyrir markaðinn til að þróa skapandi og áhrifaríkari lausnir.

Nýjar lausnir í ríkisrekstri

Sigurjón Einar Þráinsson, sviðsstjóri umbóta- og þróunarsviðs Fjársýslunnar kynnti verkefnið „Að kenna gömlum hundi að hjóla“, þar sem sýnt var hvernig Orrinn — fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins — hefur verið þróað áfram til að styðja stafrænar viðskiptakortalausnir og aukna sjálfvirkni í rekstri og bókhaldi ríkisstofnana.

Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við nýskapandi fjártæknifyrirtæki og opnar ný tækifæri fyrir stofnanir ríkisins til að nýta hraða tækniþróun á sviði fjármálaþjónustu.

Þá flutti Anna Sigríður Íslind, prófessor við Háskólann í Reykjavík erindi þar sem hún sagði frá fimm örsögum úr rannsókna- og þróunarverkefnum á sviði heilbrigðis- og velferðarmála. Þar undirstrikaði hún mikilvægi þess að innkaup og innleiðing séu hluti af þróunarferlinu frá upphafi svo nýsköpun skili sér í raunverulegum umbótum í opinberri þjónustu.

Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 afhent

Í lok dagskrár voru Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 afhent við hátíðlega athöfn. Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum.

Einstaklingur í opinberu starfi

Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi forystu í stafrænni umbreytingu íslenska menntakerfisins. Undir hennar stjórn hafa fjölmörg umfangsmikil verkefni orðið að veruleika, þar á meðal Matsferill, Mín miðstöð og rafræn innritun framhaldsskólanema í gegnum Ísland.is.

Ríkisaðili

Sjúkratryggingar Íslands fengu verðlaun fyrir frumkvæði í fjarheilbrigðisþjónustu með Húðvaktinni. Verkefnið hefur bætt aðgengi að sérfræðiþjónustu um allt land, stytt biðlista og auðveldað þúsundum einstaklinga að fá hraðari þjónustu.

Sveitarfélag

Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar (ÞON) hlaut verðlaun fyrir markvissa og kerfislæga nálgun að nýsköpun í opinberri þjónustu. Dómnefndin lagði meðal annars áherslu á þróun lausnarinnar SkólaBúa og uppbyggingu stafrænna innviða sem hafa orðið öðrum sveitarfélögum fyrirmynd.

Heiðursverðlaun

Sigurður Magnús Garðarsson hlaut heiðursverðlaun fyrir áratugalangt framlag til opinberrar nýsköpunar á sviði innviða, orkumála og umhverfisverndar. Sérstaklega var horft til rannsókna hans og leiðtogahlutverks í uppbyggingu alþjóðlegs samstarfs á sviði jarðvarmanýtingar og sjálfbærra lausna auk forystu í hagnýtingu rannsókna og stuðningi við nýsköpunarumhverfið m.a. sem stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands.

Öflugur vettvangur fyrir framtíð opinberrar þjónustu

Nýsköpunardagur hins opinbera hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir samtal, miðlun reynslu og þróun nýrra lausna í opinberum rekstri. Mikill áhugi og metþátttaka í ár undirstrika aukna áherslu á nýsköpun og samstarf við þróun opinberrar þjónustu á Íslandi.

Ingþór Karl Eiríksson fjársýslustjóri
Gestir  á nýsköpunardegi hins opinbera 2026
Verðlaunahafar - allir
Áslaug Hulda Jónsdóttir og Elmar Hallgríms Hallgrímsson frá Sjúkratryggingum Íslands
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
Gestir á nýsköpunarverðlaunum hins opinbera 2026

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500