Fjársýsludagurinn – örfá sæti laus í sal
5. nóvember 2026
Skráning á Fjársýsludaginn hefur gengið mjög vel og nú eru aðeins örfá sæti laus. Það er ánægjulegt að sjá hversu mikill áhugi er á viðburðinum í ár.

Starfsfólk Fjársýslunnar hefur lagt metnað í að setja saman fjölbreytta og áhugaverða dagskrá. Fjársýsludagurinn er jafnframt kjörið tækifæri til að hittast, efla tengsl og eiga samtal við samstarfsfólk, vini og kunningja víðs vegar úr ráðuneytum og stofnunum ríkisins.
Við hvetjum þau sem hafa hug á að mæta á staðinn til að skrá sig sem allra fyrst og tryggja sér sæti.
Hægt verður að fylgjast með stærstum hluta dagskrárinnar í streymi fyrir þau sem ekki komast á staðinn.
