Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1171/2008

Reglugerð um starfsemi sprengjusérfræðinga, hæfisskilyrði og menntun.

1. gr.

Rétt til að bera starfsheitið sprengjusérfræðingur og starfa sem slíkur hefur aðeins sá sem hlotið hefur leyfi til starfans frá Landhelgisgæslu Íslands.

Sprengjusérfræðingar sjá um að gera skaðlaus reköld, tundurdufl, sprengjur eða aðra hluti sem sjófarendum getur stafað hætta af auk sprengjueyðingar á landi. Sprengjusérfræðingar stjórna öryggisleit um borð í skipum, loftförum og í byggingum á landi skv. beiðni lögreglu eða stjórnvalda.

2. gr.

Leyfi skv. 1. gr. má aðeins veita þeim sem uppfyllir skilyrði 3. gr. um menntun á sviði sprengjueyðingar, sem Landhelgisgæsla Íslands metur gilda.

3. gr.

Sprengjusérfræðingar skulu þjálfaðir samkvæmt lágmarksstaðli Atlantshafsbandalagsins er tilgreinir kröfur sem gerðar eru til starfsfólks sem starfar við sprengjueyðingu (NATO STANAG 2389 - Minimum standards of proficiency for Explosive Ordnance Disposal Personnel).

Sprengjusérfræðingar flokkast með eftirfarandi hætti eftir þjálfun:

  1. Aðstoðarmaður sprengjusérfræðings, stig 1.
    Hefur lokið námskeiði Landhelgisgæslunnar fyrir aðstoðarmenn sprengjusérfræðinga (Explosive Ordnance Disposal).
  2. Aðstoðarmaður sprengjusérfræðings, stig 2.
    Hefur lokið námskeiði skv. a-lið og námskeiði Landhelgisgæslunnar fyrir aðstoðarmenn við eyðingu heimatilbúinna sprengja (IEDD).
  3. Sprengjusérfæðingur, stig 1.
    Hefur lokið framhaldsnámskeiði fyrir sprengjusérfræðinga í skóla sem kennir skv. stöðlum Atlantshafsbandalagsins, NATO STANAG 2389.
  4. Sprengjusérfræðingur, stig 2.
    Hefur lokið framhaldsnámi skv. c-lið og einnig framhaldsnámskeiði í eyðingu heimatilbúinna sprengja í skóla sem kennir skv. stöðlum Atlantshafsbandalagsins, NATO STANAG 2389.

4. gr.

Sprengjusérfræðingar skulu viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar varðandi starfið.

Til að viðhalda réttindum sínum skal sprengjusérfræðingur ljúka minnst einni æfingu, einu verkefni eða einu útkalli mánaðarlega.

Til að viðhalda réttindum skv. d-lið 3. gr. skal viðkomandi sækja framhaldsnámskeið í eyðingu heimatilbúinna sprengja skv. NATO STANAG 2389 á minnst þriggja ára fresti.

5. gr.

Sprengjusérfræðingur sem starfar við sprengjueyðingu neðansjávar skal ljúka a.m.k. fjórum verkefnum eða æfingum á ári. Þeir sem starfa við skotvopnaþjálfun skulu taka þátt í a.m.k. sex slíkum æfingum á ári. Nánar er kveðið á um lágmarkskröfur til þjálfunar í NATO STANAG 2389.

6. gr.

Landhelgisgæslan gefur út starfsleyfi til sprengjusérfræðinga sem uppfylla kröfur reglugerðarinnar þar sem jafnframt kemur fram hvort þeir hafa heimild til að halda réttindanámskeið í faginu.

7. gr.

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fara með lögregluvald þegar þeir eru að störfum sem tengjast löggæslu í efnahagslögsögu Íslands. Sem slíkir starfa þeir einnig á vegum lögreglu í landi.

8. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 2. mgr. 15. gr. laga nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 10. desember 2008.

Björn Bjarnason.

Skúli Þór Gunnsteinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.