Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 21. maí 2009

253/2009

Reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með sjálfvirkum vogum.

I. KAFLI Gildissvið og skilgreiningar.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um sjálfvirkar vogir, sem eru löggildingarskyldar sbr. 6. gr. Hér eftir nefnast þær vogir. Vogir, sem reglugerð þessi tekur til, skulu uppfylla þær kröfur og sæta því mælifræðilega eftirliti sem kveðið er á um í þessari reglugerð og þeim reglum sem hún vísar til.

Setja má á markað og taka í notkun skv. 1. mgr. EBE-vogir, vogir með íslenskt vottorð og MID-vogir.

2. gr. Skilgreiningar.

Nota skal eftirfarandi skilgreiningar um vogir:

  1. EBE-sannprófun er frumsannprófun í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 129/1994 um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
  2. EBE-gerðarviðurkenning er gerðarviðurkenning í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 129/1994 um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
  3. EBE-vogir eru sjálfvirkar vogir sem hafa gilda EBE-gerðarviðurkenningu, bera rétt merki þar um og eru innsiglaðar, sbr. reglugerð nr. 129/1994 um mælitæki og aðferðir við mælifræðilegt eftirlit.
  4. Innsigli eru venjulega hnappar eða miðar, sbr. reglugerð nr. 955/2006 um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja en geta einnig verið hugbúnaðarinnsigli þar sem skrá þarf lykilorð til þess að fá aðgengi að stillingum og allt slíkt aðgengi er skráð. Innsiglun skal vera í samræmi við fyrirmæli framleiðanda.
  5. Mesta leyfða skekkja er hæsta tölugildi fyrir skekkju sem er leyfð samkvæmt þessari reglugerð.
  6. MID-vogir eru sjálfvirkar vogir sem hvorki hafa fullgilda EBE-gerðarviðurkenningu né íslenska gerðarviðurkenningu fyrir 30. október 2006 og sem falla undir ákvæði í viðauka MI-006 í viðauka við reglugerð nr. 465/2007 um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki og uppfylla viðeigandi kröfur, bera réttar merkingar þar um og eru innsiglaðar. Samræmismati MID-voga skal lokið áður en þær eru teknar í notkun.
  7. Vogir með íslenskt vottorð eru sjálfvirkar vogir sem hafa vottorð um innlenda gerðarviðurkenningu og bera rétt merki þar um, sbr. 3. gr. og eru innsiglaðar.
  8. Mælitækjabirgir er framleiðandi, viðurkenndur fulltrúi, seljandi eða dreifingaraðili mælitækja, sem falla undir 1. mgr. 1. gr., sbr. 8. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.
  9. Sjálfvirk vog er tæki sem ákvarðar massa vöru án afskipta starfrækjanda og fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun sem byggir á sjálfvirkum ferlum sem eru einkennandi fyrir tækið.
  10. Tilkynntur aðili er aðili sem stjórnvöld hafa tilkynnt til Eftirlitsstofnunar EFTA, framkvæmdastjórnar ESB og annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins að uppfylli viðeigandi kröfur til þess að fást við samræmismat samkvæmt tiltekinni tæknilegri reglugerð.

Auk ofangreindra skilgreininga skal nota skilgreiningar í viðauka MI-006 í viðauka við reglugerð nr. 465/2007 um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki fyrir MID-vogir.

II. KAFLI Eldri vogir, fyrsta notkun og merking, löggildingarskylda.

3. gr. Íslensk vottorð um gerðarviðurkenningar.

Íslensk vottorð um gerðarviðurkenningar fyrir sjálfvirkar vogir byggð á erlendum landsviðurkenningum, sem gefin voru út fyrir 30. október 2006, gilda áfram í samræmi við ákvæði til bráðabirgða.

Vogirnar skulu bera númer íslenska vottorðsins þegar þær eru settar á markað á Íslandi og skulu prófaðar eftir sömu kröfum og gerðar eru í upprunalandinu en séu slíkar kröfur ekki þekktar skal að lágmarki prófað í samræmi við kröfur um EBE-sannprófun.

4. gr. Áframhaldandi notkun eldri voga.

Nota má til verkefna skv. 1. mgr. 1. gr. vogir sem ekki falla undir vogagerðir skv. 2. mgr. 1. gr. og þegar hafa verið teknar í notkun, meðan þær mæla rétt, sbr. ákvæði IV. og V. kafla.

5. gr. Fyrsta notkun og merking.

Vogir með íslenskt vottorð skulu hljóta löggildingu áður en þær eru teknar í fyrstu notkun, sbr. reglugerð nr. 956/2006 um starfshætti þeirra sem annast löggildingar í umboði Neytendastofu.

EBE-vogir með EBE-sannprófun, réttar merkingar og innsigli og MID-vogir, sem samræmismati er lokið fyrir, eru rétt merktar og innsiglaðar, teljast hafa löggildingu til fyrstu notkunar að því tilskildu að þær hafi verið stilltar fyrir þyngdarsvæði notkunar og ekki megi ætla að uppsetning á notkunarstað hafi haft áhrif á mælinákvæmni þeirra. Auk þess skal eigandi sjá til þess að EBE- og MID-vogir beri sérstakt merki fyrir ný mælitæki, sbr. reglugerð nr. 955/2006, um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja.

6. gr. Löggildingarskyldar vogir.

Skylt er að löggilda vogir sem hafðar eru til eftirfarandi nota:

  1. Ákvörðun massa fyrir verslunarviðskipti.
  2. Ákvörðun massa fyrir útreikning á tollum, vörugjöldum, skatti, kaupauka eða ágóðahlut, févíti, þóknun, bótum eða greiðslum af slíkum toga.
  3. Ákvörðun verðs á grunni massa vegna beinnar sölu til almennings og vegna gerðar forpakkaðrar vöru.
  4. Vigtun samkvæmt reglugerð nr. 224/2006 um vigtun og skráningu sjávarafla sem þar er kveðið á um að fara skuli fram á löggiltri vog þótt hún kunni ekki að falla undir lið a.

Neytendastofa sker úr þegar vafi kann að leika á um löggildingarskyldu og getur heimilað frávik þegar hagsmunir eru litlir af notkun vogar. Önnur stjórnvöld geta einnig kveðið á um löggildingarskyldu svo sem vegna vigtunar sjávarafla.

III. KAFLI Um ábyrgð aðila.

7. gr. Kröfur til birgja.

Mælitækjabirgir voga má ekki markaðssetja, selja eða afhenda vogir til notkunar samkvæmt 1. mgr. 1. gr. nema þær uppfylli ákvæði 2. mgr. 1. gr., EBE-vogir hafi EBE-sannprófun, vogir með íslenskt vottorð uppfylli kröfur 3. gr. og samræmismati MID-voga sé lokið, þær hafi samræmisyfirlýsingu, séu rétt merktar og innsiglaðar.

Mælitækjabirgir voga skal upplýsa kaupanda um nákvæmnisflokk, hámark og aðrar kennistærðir voganna og hvort ætla megi að þær henti fyrirhugaðri notkun.

8. gr. Kröfur til eigenda voga.

Eigandi má ekki setja eða láta setja vog upp til notkunar samkvæmt 1. mgr. 1. gr. nema vogin sé rétt merkt og innsigluð.

Eigandi vogar, sem er löggildingarskyld skv. 6. gr., ber ábyrgð á því að fá löggildingu hjá prófunarstofu sem hefur til þess umboð, sbr. reglugerð nr. 956/2006 um starfshætti þeirra sem annast löggildingu mælitækja í umboði Neytendastofu.

Hafi eigandi vitneskju um að notkunarfrávik vogar séu yfir tvöföldum fráviksmörkum sem höfð eru til viðmiðunar fyrir nýjar vogir, eða aðrar ástæður sem valda því að löggilding er úr gildi fallin sbr. 3. mgr. 17. gr. ber hann ábyrgð á því að taka vogina úr notkun uns hún hefur verið endurlöggilt.

Eigandi vogar skal hlíta skilyrðum framleiðanda um aðstæður fyrir notkun og leyfð rekstrarskilyrði. Taka skal mið af kröfum til MID-voga í viðaukum I og MI-006 í viðauka við reglugerð nr. 465/2007 um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki og í þessari reglugerð.

9. gr. Kröfur til þjónustuaðila.

Vog sem er löggildingarskyld skv. 6. gr. en er ekki með gilda löggildingu, sbr. 17. gr., ber að láta endurlöggilda áður en hún er tekin aftur í notkun, með þeirri undanþágu sem greinir í 4. mgr. 17. gr.

Þjónustuaðili, sem hefur framkvæmt einhverja þá aðgerð, sem krefst endurlöggildingar, sbr. 1. mgr. skal þegar tilkynna það eiganda vogarinnar.

IV. KAFLI Kröfur til voga í notkun.

10. gr. Markaðseftirlit.

Vogir falla undir kröfur um markaðseftirlit í samræmi við reglugerð nr. 465/2007 um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki.

11. gr. Mestu leyfðu skekkjur.

Mestu leyfðu skekkjur voga við löggildingu eru þær sömu og krafist er í viðauka MI-006 í viðauka við reglugerð nr. 465/2007 um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki.

12. gr. Aðrar kröfur.

Við prófun vegna löggildingar skulu vogir uppfylla kröfur um merkingar og innsigli, sem gerðar voru til þeirra þegar þær voru settar á markað og teknar í notkun. Þetta á þó ekki við um eldri vogir sbr. 4. gr. og 15. gr.

Undirlag voga skal hæfa vogargerð og notkun, það skal vera stöðugt, lárétt og laust við óhreinindi, sem áhrif gætu haft á mæliniðurstöður vogarinnar.

Umhverfishitastig skal hæfa vog og óheimilt er að löggilda eða nota vog ef hitastigið er utan þess sviðs sem vogin er gerð fyrir.

Vog skal ekki löggilt eða notuð nema veðuráraun eða aðrir umhverfisþættir hafi hverfandi áhrif á niðurstöður, þannig að ætla megi að kröfur um mestu leyfðu skekkju séu uppfylltar.

13. gr. Vogir sem taka skal úr notkun.

Ef í ljós kemur að vogir uppfylla ekki kröfur þessa kafla skulu þær teknar úr notkun og hljóta ekki endurlöggildingu.

Þrátt fyrir ákvæði þessa kafla er heimilt að nota vog fram að næstu löggildingu á meðan skekkja hennar er ekki meiri en tvöföld mesta leyfða skekkja.

V. KAFLI Reglur um löggildingar voga.

14. gr. Lóð notuð við löggildingu.

Lóð, sem notuð eru við löggildingar voga, skulu vera í samræmi við kröfur gildandi reglugerða um lóð og skulu þau henta aðstæðum og vog þeirri sem verið er að prófa.

Nota skal lóð a.m.k. í nákvæmnisflokki M1 við löggildingar, þess skal gætt að óvissa eða þekkt skekkjumörk lóða séu ekki meiri en 1/5 hluti af mestu leyfðu skekkju sem við á sbr. viðauka MI-006 í viðauka við reglugerð nr. 465/2007 um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB um mælitæki. Nákvæmnisflokkur lóða M1 er skilgreindur í reglugerð nr. 136/1994.

Krafan um heildaróvissu við löggildingar í reglugerð nr. 956/2006 um starfshætti þeirra sem annast löggildingar mælitækja í umboði Neytendastofu, getur leitt til þess að nákvæmnin sem krafist er í 2. mgr. sé ekki fullnægjandi. Það sama á við þegar efni sem er vegið sérstaklega er notað í stað lóða til að prófa sjálfvirkar vogir.

15. gr. Prófunarkröfur við löggildingar.

Skoða skal eða prófa hvort vog uppfylli kröfur samkvæmt kafla IV. Prófa skal vogir við aðstæður sem eru líkar aðstæðum við notkun, eftir því sem unnt er.

Prófa má sjálfvirka vog eins og hún væri ósjálfvirk og gera síðan einnig sívirka prófun eins og aðstæður leyfa.

Athuga skal merkingar, innsiglun og upplýsingar á vog og skjá hennar, aðstæður sbr. 12. gr. og hvort notkun hentar voginni.

Prófa skal mælifræðilega eiginleika voga. Til þess að vog standist prófun mega frávik ekki vera meiri en mestu leyfðu skekkjur sbr. 11. gr. Gildir þetta um hvert atriði sem prófað er.

Prófa skal allt mælisvið vogarinnar, sérstaklega við lágmark, hámark og þar sem mesta leyfða skekkja breytist og gera endurtektar- og hjámiðjuprófun. Ef vísbendingar kunna að benda til truflana við vigtun skal skoða áhrif af hugsanlegum skekkjuvöldum svo sem af dragsúgi, sterkum rafstraumi, segulsviði og inngeislun hita, ljóss eða farsíma.

Heimilt er að löggilda eldri vogir sbr. 4. gr. þó svo að merkingar séu ekki í samræmi við kröfur reglugerðarinnar að því tilskildu að lágmarksmerkingar komi fram. Lágmarksmerkingar eru:

  1. Vogargerð.
  2. Hámarksgeta og afköst og hraði bands ef við á.
  3. Lágmarksgeta.
  4. Skerðingargildi.
  5. Raðnúmer.

16. gr. Löggilding.

Vog má löggilda hafi hún staðist skoðun og prófun, sbr. 15. gr. Löggilding er staðfest með því að festur er á vogina löggildingarmiði og jafnframt gerð skýrsla um prófun og löggildingu hennar. Hafi vogin búnað sem notanda er óheimilt að fjarlægja eða stilla skal tryggja gegn slíku með innsigli áður en löggildingarmiði er festur á vogina.

Prófunarstofa sem annast löggildingar má ekki gera við vog. Þegar frávik vogar reynist vera komið út fyrir leyfileg fráviksmörk er löggildingaraðilanum þó heimilt að stilla vogina sé slík stilling gerð í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda eða viðurkenndar aðferðir þegar leiðbeiningarnar eru ekki til.

17. gr. Gildistímar löggildinga og samþykki þjónustuaðila.

Gildistími löggildinga voga er tvö ár.

Gildistími fyrir nýjar vogir miðast við ártal EBE-sannprófunar eða ártalið í CE-merkingunni. Þannig skal löggilda nýja EBE- eða MID-vog fyrir lok þar næsta árs á eftir ártali EBE-sannprófunar eða ártalinu í CE-merkingunni.

Löggilding fellur úr gildi, þrátt fyrir að gildistími sé ekki liðinn, ef:

  1. Vog bilar.
  2. Innsigli er rofið.
  3. Viðgerð er framkvæmd á voginni sem áhrif getur haft á mæliniðurstöður hennar.
  4. Vog er flutt á annað þyngdarsvæði en hún var löggilt eða stillt fyrir.
  5. Skekkja er meiri en tvöföld mesta leyfða skekkja sbr. 11. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. er þjónustuaðila, sem Neytendastofa samþykkir, heimilt að rjúfa innsigli og annast minni háttar viðgerðir án þess að löggilding falli úr gildi. Þjónustuaðilinn skal innsigla vogina að nýju með auðkenni sínu og senda Neytendastofu skýrslu um hvað var gert.

Samþykki Neytendastofu á þjónustuaðila er háð skilyrðum, sem Neytendastofa setur og ákvörðun Neytendastofu eftir könnun á hæfni og vinnubrögðum hans til þess að tryggja að mæliniðurstöður verði áfram innan mesta leyfilega fráviks í notkun.

Neytendastofa gefur út skriflegt leyfi til þjónustuaðila með nánari skilmálum og afmörkun heimilaðra viðgerða. Uppfylli þjónustuaðili ekki lengur þau skilyrði, sem samþykki Neytendastofu er háð, getur hún afturkallað og fellt úr gildi heimild þjónustuaðila samkvæmt þessari grein.

18. gr. Skýrslugerð.

Skýrslugjöf til Neytendastofu skal vera í samræmi við 11. gr. reglugerðar nr. 956/2006 um starfshætti þeirra sem annast löggildingar mælitækja í umboði Neytendastofu.

Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í prófunarskýrslum sem lagðar eru til grundvallar löggildingu og þær skulu vera aðgengilegar starfsmönnum Neytendastofu:

  1. Núllskekkja.
  2. Vigtarfall og skekkja í þeim punktum sem prófaðir eru.
  3. Sívirkar prófanir eftir því sem við á.
  4. Hjámiðjuskekkja.
  5. Niðurstöður endurtektarprófs.
  6. Skekkja með törun.
  7. Aðstæður.

VI. KAFLI Innra eftirlit.

19. gr. Almenn skilyrði um innra eftirlit.

Heimilt er að nota innra eftirlit í stað löggildinga að fengnu samþykki Neytendastofu samkvæmt ákvæðum þessarar reglugerðar, sbr. 14. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

Innra eftirlit skal tryggja að allar vogir undir innra eftirliti standist sömu kröfur um nákvæmni og vogir sem hljóta reglubundna löggildingu.

Prófanir voga undir innra eftirliti skulu vera eftir ákvæðum V. kafla.

Við innra eftirlit í stað löggildinga skal skrá upplýsingar sem veita yfirlit um allar vogir sem falla undir gildissvið þessarar reglugerðar. Veita skal Neytendastofu viðkomandi upplýsingar um vogirnar úr þessari skrá.

Innra eftirlitskerfið skal vera skráð að fullu í eftirlits- eða gæðahandbók eiganda.

20. gr. Umsókn og málsmeðferð fyrir innra eftirlit.

Eigendur voga geta óskað eftir samþykki Neytendastofu fyrir því að gæðakerfi fyrir innra eftirlit með vogum og rekjanleika mæligilda þeirra verði tekið gilt í stað löggildingar. Umsókn skal fylgja:

  1. Eftirlits- eða gæðahandbók, um kerfið fyrir innra eftirlit, sem byggir á ÍST ISO 9001:2008 eftir því sem við getur átt.
  2. Samningur eiganda við faggilta skoðunarstofu um forskoðun á viðkomandi innra eftirliti.
  3. Yfirlit um rekstur kerfisins og aðrar upplýsingar, sem Neytendastofa telur nauðsynlegar fyrir samþykki, komi þær ekki fram í eftirlits- eða gæðahandbók.
  4. Greiðsla á umsóknargjaldi samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur.

Kerfi fyrir innra eftirlit skal fullnægja öllum ákvæðum laga og þessarar reglugerðar, svo og reglum sem Neytendastofa setur og tryggja eiga réttar mælingar.

Neytendastofa skal tilkynna umsækjanda að forskoðun faggiltrar skoðunarstofu megi fara fram, þegar fullnægjandi umsókn og fylgigögn liggja fyrir.

Skoðunarstofan annast skoðun og úttekt á kerfi fyrir innra eftirlit á grundvelli reglna sem Neytendastofa setur og fram koma í skoðunarhandbók Neytendastofu fyrir innra eftirlit.

Í umsóknarferli um viðurkenningu á innra eftirliti er umsækjanda skylt að veita allar upplýsingar um tilhögun innra eftirlits, gögn um rekstur kerfisins og nauðsynlegar upplýsingar sem þarf til að leggja mat á og gefa ábendingar um úrbætur á fyrirhuguðu innra eftirliti.

Neytendastofa tekur ákvörðun um samþykki á grundvelli álitsgerðar frá faggiltri skoðunarstofu og þeirra úrbóta sem umsækjandi hefur gert, þegar það á við. Uppfylli umsækjandi um innra eftirlit öll skilyrði sem Neytendastofa ákveður, veitir hún leyfi til að notað verði innra eftirlit í stað löggildinga gegn greiðslu á leyfisgjaldi samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur.

Synji Neytendastofa um samþykki skal það rökstutt skriflega.

Uppfylli innra eftirlit ekki lengur skilyrðin skal Neytendastofa afturkalla leyfi til innra eftirlits með vogum, sbr. einnig ákvæði 21. gr.

21. gr. Árlegt eftirlit og skýrslugerð.

Eigandi voga, sem fengið hefur samþykki Neytendastofu til innra eftirlits, sbr. 19. og 20. gr. skal hafa samning við faggilta skoðunarstofu um árlegt eftirlit í samræmi við skoðunarhandbók Neytendastofu svo og sérstakar skoðanir ef það á við. Faggilt skoðunarstofa skal gefa Neytendastofu skýrslu árlega og eigi síðar en 1. mars fyrir síðastliðið ár, um allt eftirlit og skoðanir, niðurstöður skoðana og ákvarðanir sem hafa verið teknar um vogir.

Skýrslan skal gefa tölfræðilegt yfirlit um allar gerðir bilana, galla, skekkjur, viðgerðir, flutning og rofin innsigli voga. Auk þess skal skila skýrslum um allar prófanir sbr. 18. gr. Að öðru leyti skal form, flokkun frávika og innihald skýrslunnar vera eins og Neytendastofa ákveður.

Neytendastofa staðfestir eigi síðar en 1. júní framlengingu á gildistíma heimildar til innra eftirlits gegn greiðslu árlegs eftirlitsgjalds samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur.

Hafi eigandi voga þegar vottað gæðakerfi, sem tekur til innra eftirlits með vogum, tekur Neytendastofa afstöðu til þess að hve miklu leyti ákvæði þessa kafla kunna þegar að vera uppfyllt.

VII. KAFLI Eftirlit, markaðseftirlit, stjórnsýsluúrræði o.fl.

22. gr. Hlutverk Neytendastofu.

Neytendastofa hefur eftirlit með því að farið sé eftir ákvæðum þessarar reglugerðar og annast markaðseftirlit í samræmi við viðauka við reglugerð nr. 465/2007 um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22/EB, um mælitæki og ákvæði laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

23. gr. Um framkvæmd eftirlits.

Um framkvæmd eftirlits með mælitækjum, réttarúrræði og viðurlög við brotum á ákvæðum þessarar reglugerðar fer eftir ákvæðum laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

24. gr. Gjöld vegna innra eftirlits.

Neytendastofa innheimtir umsóknargjald, leyfisgjald og árlegt eftirlitsgjald vegna innra eftirlits sbr. 20. og 21. gr. samkvæmt gjaldskrá sem sett er í samræmi við ákvæði laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

VIII. KAFLI Áfrýjun og kæruleiðir.

25. gr. Áfrýjun og kæruleiðir.

Ákvörðunum sem Neytendastofa tekur á grundvelli reglugerðar þessarar verður skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem starfar á grundvelli 4. gr. laga nr. 62/2005 um Neytendastofu og talsmann neytenda.

Ákvörðun Neytendastofu verður ekki borin undir dómstóla fyrr en úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála liggur fyrir.

IX. KAFLI Viðurlög.

26. gr. Viðurlög.

Sá sem af ásetningi eða gáleysi brýtur gegn ákvæðum reglugerðar þessarar skal sæta fésektum eða fangelsi allt að sex mánuðum ef sakir eru miklar.

Þeim sem gefur rangar eða villandi upplýsingar í tengslum við ákvarðanir eða upplýsir ekki um atriði sem skipta máli til að upplýsa mál samkvæmt þessari reglugerð skal refsað með sektum nema þyngri refsing liggi við lögum samkvæmt.

Refsa skal þeim sem brjóta gegn ákvæðum III. og VI. kafla með sektum.

Sekt samkvæmt reglugerð þessari er unnt að leggja á lögaðila í samræmi við 3. mgr. 41. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

X. KAFLI Gildistaka, aðlögun o.fl.

27. gr. Gildistaka og aðlögun.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 13. gr. laga nr. 91/2006, um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, öðlast þegar gildi.

Samtímis falla úr gildi reglugerðir nr. 794/2002 um löggildingu sjálfvirkra voga og nr. 964/2004 um sjálfvirkar vogir.

Neytendastofa skal leggja mat á gildi og árangur eftirlits samkvæmt þessari reglugerð ekki sjaldnar en á fimm ára fresti og meta þörf fyrir endurskoðun eftirlitsreglna.

Ákvæði til bráðabirgða.

Heimilt er að setja EBE-vogir og vogir með íslenskt vottorð á markað og taka þær í notkun skv. 1. mgr. 1. gr., þangað til gerðarviðurkenning þessara voga fellur úr gildi eða ef um er að ræða gerðarviðurkenningu með ótakmarkaðan gildistíma að hámarki til 30. október 2016. Gildistími vottorða um íslenska gerðarviðurkenningu skal vera sá gildistími sem tilgreindur er í vottorðinu, sem íslenska vottorðið byggir á, eða síðari viðbótum við upprunalega vottorðið. Ef ekki er að finna gildistíma í erlenda vottorðinu skal hann teljast vera 10 ár frá útgáfu þess.

Ákvæði til bráðbirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 17. gr. skulu vogir sem löggiltar voru fyrir gildistöku reglugerðarinnar halda áður útgefnum gildistíma löggildingar.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.