Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Ökutækjastyrkur og frádráttur

Ökutækjastyrkur er greiðsla vegna notkunar eigin bifreiðar í þágu vinnuveitanda. Slíkar greiðslur teljast til skattskyldra tekna en heimilt er að færa kostnað á móti.

Frádrátt á móti ökutækjastyrk má færa ef bifreið launþega hefur sannanlega verið notuð vegna aksturs í þágu vinnuveitanda.

Staðgreiðsla skatts af ökutækjastyrk

Ökutækjastyrkur sem greiddur er sem föst mánaðarleg eða árleg fjárhæð (án akstursdagbókar) er staðgreiðsluskyldur og launagreiðanda ber að draga af skatt við útborgun.

Ökutækjastyrk má halda utan staðgreiðslu (tekjuskattur og útsvar gert upp á framtali) ef:

  • Greitt er samkvæmt akstursdagbók fyrir hvern ekinn kílómetra

  • Fjárhæðin er í samræmi við ákvörðun ferðakosnaðarnefndar á hverjum tíma.

Ef greiddur ökutækjastyrkur á hverni kílómetra er hærri en fjárhæð ferðakostnaðarnefndar þarf launþegi að borga skatt af mismuninum.

Heimild til að færa kostnað til frádráttar ökutækjastyrk

Frádrátt á móti ökutækjastyrk má færa ef bifreið launþega hefur sannanlega verið notuð vegna aksturs í þágu vinnuveitanda. Frádráttur getur ekki verið hærri en ökutækjastyrkurinn.

Frádráttur á móti ökutækjastyrk er eingöngu heimill ef bæði eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • Fyrir liggi skriflegur afnotasamningur þar sem aksturserindum er skilmerkilega lýst.

  • Haldin sé akstursdagbók (má vera rafræn) þar sem skráð er hver ferð, dagsetning, vegalengd, erindi, kílómetragjald, nafn og kennitala launamanns og skráningarnúmer ökutækis. Einnig skal skrá heildarakstur bifreiðar árlega. Gögnin skulu færð reglulega og vera aðgengileg skattyfirvöldum við beiðni.

Athugið að frádrátt má ekki færa á móti ökutækjastyrk sem var greiddur vegna ferða launþegans milli heimilis og vinnustaðar eða vegna annarra nota af bifreiðinni sem teljast til eigin nota launþega.

Frádráttur miðast við heildarfjölda ekinna kílómetra í þágu launagreiðenda og fjárhæð sem kveðið er á um í skattmati.

Ítarefni

Þjónustuaðili

Skatt­urinn