Í tilefni af Degi lækna, sem haldinn er í dag, 17. maí, fengum við Helgu Björk Heiðarsdóttur til að segja okkur frá sinni leið í læknisfræðina, starfinu í dag og hvernig hún sér framtíð heilbrigðiskerfisins. Helga starfar sem læknir á lyflækningadeild SAk og er ein af fjölmörgum læknum sem leggja sig fram dag eftir dag við að veita góða og örugga þjónustu við sjúklinga.