Norska persónuverndarstofnunin (Datatilsynet) birti í vikunni <a href="https://www.datatilsynet.no/aktuelt/aktuelle-nyheter-2021/datatilsynet-velger-a-ikke-bruke-facebook/"><strong>niðurstöður</strong></a> mats á áhrifum á persónuvernd sem stofnunin framkvæmdi á fyrirhugaðri notkun hennar á samfélagsmiðlinum Facebook. Til stóð að útbúa sérstaka síðu til að koma starfsemi stofnunarinnar á framfæri við almenning.<br>