Persónuvernd
hefur sent dómstólum landsins bréf og tilkynnt að stofnunin hafi fellt niður
frumkvæðisathugun sína á framkvæmd dómstólanna við birtingu persónuupplýsinga í
dómum á Netinu með vísan til dóms Evrópudómstólsins frá 24. mars 2022 í máli
nr. C-245/20. Dómurinn varðar undanþágu frá valdsviði eftirlitsyfirvalda
samkvæmt evrópsku persónuverndarreglugerðinni, sem vísar til þess þegar
dómstólar fara með dómsvald sitt. Í niðurstöðu dómsins segir að vinnsla
persónuupplýsinga framkvæmd af dómstólum í sambandi við upplýsingastefnu þeirra
(e. in context of their communication policy) varðandi mál sem þeir hafa til
meðferðar falli utan valdsviðs eftirlitsyfirvalda samkvæmt reglugerðinni.