Aðgengi að heilbrigðisþjónustu ber ítrekað á góma í umfjöllun um heilbrigðismál, hvort sem umfjöllunarefnið snýr að frumþjónustunni, búsetuúrræðum aldraðra sem ekki er hægt að útskrifa af spítalanum, þjónustu við viðkvæma hópa með taugaþroskaraskanir eða aðra sem hafa þörf fyrir heilbrigðisþjónustu en eiga í erfiðleikum með að fá lausn sinna mála. Þá hefur umræðan einnig á köflum hverfst um flækjustig kerfisins, stafrænar lausnir sem liðka eiga fyrir en snúast upp í andhverfu sína.