Lögreglustjóranum á Suðurnesjum hefur borist meðfylgjandi minnisblað COWI, ráðagjafafyrirtækis á sviði m.a. verkfræði, sem unnið var að beiðni Grindavíkurnefndar. Beiðni Grindavíkurnefndar laut að því að ráðgjafafyrirtækið legði mat á, út frá eigin forsendum, óháð öðrum sem hafa komið að málinu, hvort óhætt sé og þá hvernig eigi að standa að leit að manni sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024.