9870 leitarniðurstöður
Á undanförnum árum hefur geðþjónustan lagt aukna áherslu á stuðning við aðstandendur.
Starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar (HTÍ) var boðið velkomið til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) á fundi með starfsfólki miðstöðvarinnar í dag. Starfsemin flyst formlega til HH þann 1. maí næstkomandi.
Biðtími eftir sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum hefur styst milli ára og voru 547 á biðlista í lok árs 2025. Áfram er unnið að því að stytta biðlista bæði hjá börnum og fullorðnum.
Það rigndi lítið eitt og blés af sunnan þegar sprækur hópur Lionsfélaga kom saman á Kjalarnesi 30. september til að taka þátt í landsátakinu Söfnum og sáum birkifræi og hóf þar með átakið formlega þetta árið. Þótt víða sé lítið af fræi á birki í ár má vel finna góða staði og safna talsverðu magni.
Katrín Lea Elenudóttir, sem lauk nýverið meistaranámi í friðar- og öryggisfræðum við King’s College London, er ein þeirra sem hefur nýtt sér UK–Iceland Explorer námsstyrkinn fyrir framhaldsnám í Bretlandi. Næsti umsóknarfrestur rennur út 30. janúar 2026 kl. 15:00.
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Breiðholtsbraut, Reykjavegi, Sæbraut, Arnarnesvegi og Ægisíðu.
Jón Gunnlaugur Jónasson er heiðursvísindamaður Landspítala 2024 fyrir framúrskarandi framlag til vísinda á ferli sínum. Hann er yfirlæknir á meinafræðideild Landspítala og prófessor í meinafræði við Háskóla Íslands.