Persónuvernd sendi á dögunum bréf
og fræðslubæklinga í alla grunnskóla landsins þar sem fjallað er um grunnatriði
um persónuvernd barna, bæði fyrir kennara og aðra þá sem vinna með
upplýsingarnar og einnig fyrir börnin og ungmennin sjálf. Í bréfinu eru skólastjórnendur
hvattir til þess að kynna efnið fyrir kennurum, öðru starfsfólki og nemendum. Af
því tilefni birtist eftirfarandi <a href="https://www.frettabladid.is/skodun/personuvernd-barna-innan-heimilis-og-utan/">grein</a>
í Fréttablaðinu í dag, 20. maí 2019.