Íslenska fyrirtækið Defend Iceland hlaut nýverið styrk frá Innovation Norway, Rannsóknaráði Noregs (Norges forskningsråd) og Norsku þjóðaröryggisstofnuninni (Nasjonal sikkerhetsmyndighet) fyrir verkefnið Defend the Grid. Verkefnið er eitt af þeim sem hljóta stuðning til að efla netöryggi í raforkugeiranum.