Erlendum ríkisborgara var vísað frá Íslandi á föstudaginn í síðustu viku, en um er að ræða karlmann á þrítugsaldri sem var handtekinn sl. fimmtudag vegna þjófnaðar í verslun í Reykjavík, degi eftir komuna til landsins. Þýfið fannst í fórum hans, en við yfirheyrslu hjá lögreglu játaði maðurinn sök. Talið er að tilgangur ferðarinnar til Íslands hafi verið að stunda brotastarfsemi hérlendis.