Samfélagsmiðillinn TikTok hefur sætt
gagnrýni fyrir umfangsmikla söfnun og vinnslu persónuupplýsinga um notendur
sína. Evrópska persónuverndarráðið (European Data Protection Board) hefur af
því tilefni sett á laggirnar átakshóp til að öðlast betri yfirsýn yfir
starfsemi fyrirtækisins og samræma mögulegar aðgerðir aðildarríkjanna.
Persónuvernd hvetur foreldra og forráðamenn til að fræða börn sín um
samfélagsmiðla og þá áhættu sem getur falist í því að deila persónuupplýsingum
á slíkum miðlum.