<strong>Út er komin ársskýrsla Persónuverndar 2019. </strong><strong>Í ársskýrslunni má meðal annars finna tölfræðilegar upplýsingar og ýmsan fróðleik um hlutverk og starfsemi Persónuverndar, auk formála forstjóra, þar sem farið er yfir helstu verkefni Persónuverndar og það sem efst var á baugi á árinu. Þar er jafnframt að finna alvarlegar athugasemdir vegna frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2021. </strong>