Landskrifstofu bárust alls 72 umsóknir um KA2 samstarfsverkefni í umsóknarfrestinum þann 5. mars. Umsækjendur voru afar fjölbreyttir og komu víða að – allt frá tónlistarskólum til félagasamtaka og allra skólastiga þar á milli. Verkefnin fjalla um mikilvæg málefni sem falla vel að markmiðum Erasmus+.