Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur. Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið.