5135 leitarniðurstöður
Hæstiréttur kvað í dag upp dóm í máli sem B höfðaði gegn A vegna sýningar á sjónvarpsþætti en í honum voru meðal annars sýnd viðtöl við B sem tekin höfðu verið upp sumarið áður. Ágreiningur aðila laut að kröfu B um greiðslu miskabóta úr hendi A meðal annars á þeim grundvelli að í þættinum hefðu komið fram viðkvæmar persónuupplýsingar án samþykkis hennar.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað fimm reglugerðir sem allar tengjast nýju örorku- og endurhæfingarkerfi sem tekur gildi þann 1. september nk.
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf kerfisstjóra. Leitað er að drífandi einstaklingi í spennandi og fjölbreytt starf hjá öflugri menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um fullt starf er að ræða og er kerfisstjóri hluti af öflugu teymi á skrifstofu rekstrar.