<img title="Stofnun_arsins_litid" src="/media/myndir/small/Stofnun_arsins_litid.jpg" alt="Stofnun_arsins_litid">Á föstudaginn voru kynntar niðurstöður könnunar um Stofnun ársins 2012 við hátíðlega athöfn á Hilton Hótel Nordica. Um er að ræða starfsánægjukönnun sem gerð var á vegum SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og fjármálaráðuneytisins. Hlaut Persónuvernd hæstu einkunn sem stofnun ársins 2012 í flokki lítilla stofnanna með heildareinkunnina 4,7 af 5.