Umsóknarfrestur til 15.desember 2023. Vinnueftirlitið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands eiga í samstarfi um verkefni sem hefur það markmið að meta áhættuþætti í vinnuumhverfi starfsfólks leik- og grunnskóla. Ætlunin er að stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi og um leið að góðri heilsu, vellíðan og öryggi allra sem þar starfa.