Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu

Þjónustuaðili:

Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1

Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.

Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.

    Sending, flutningsmáti og tollstöð - reitir 17 til 30

    19 stafa sendingarnúmer sem farmflytjandi gefur sendingu. Kemur á flutningsgjaldsreikningi eða tilkynningu farmflytjanda:

    Hluti

    Lýsing

    A

    Farmflytjandi – tákn skipafélagsins eða flugfélagsins

    BBB

    Flutningsfar – skammstöfun fyrir flutningsfar.

    CCCC

    Brottfarardagur. Fyrstu tveir bókstafirnir standa fyrir viðkomandi dag í mánuði en tveir síðustu fyrir mánuðinn.

    D

    Ár – síðasti stafur ártals.

    EE

    Hleðsluland – LOCODE landslykill

    FFF

    Hleðslustaður – LOCODE staðall

    GGGG

    Númer sendingar – farmskrárnúmer eða innfærslunúme. Töluröð innan hleðslustaðar fyrir hverja ferð.

    H

    Vartala til prófunar, færist ekki inn á skýrslu.

    Tollafgreiðsla á pósthúsum

    Sendingarnúmer í pósti er eins og almenna sendingarnúmerið 19 stafa tala sem greinist í átta þætti sem hér segir:

    A-BBB-CCCC-D-EE-FFF-GGGG-H

    A

    Sendingarnúmer vegna póstsendingar byrjar ávallt á bókstafnum P.

    BBB

    Flutningsfar - þriggja stafa kóði, sem er einkenni pósthúss og venjulegast er póstnúmer tollafgreiðslupósthúss.

    CCCC

    Brottfarardagur. Fyrstu tveir bókstafirnir standa fyrir viðkomandi dag í mánuði en tveir síðustu fyrir mánuðinn.

    D

    Ár – síðasti stafur ártals.

    EE

    Hér skal ávallt skrá IS, tákn fyrir Ísland, þegar um póstsendingu er að ræða.

    FFF GGGG

    Staður og farmskrárnúmer. Hér skal skrá U eða H fremst í þetta sjö stafa svæði. U merkir að um böggul/bréf sé að ræða. H merkir að um hraðsendingu sé að ræða.

    Á eftir U eða H skal skrá viðtökunúmer böggulsins eða bréfsins alls sex stafi. Rita skal 0 (núll) á undan viðtökunúmeri ef það er minna en 6 stafir. Ef útflutningsskýrslan nær yfir fleiri en einn böggul eða bréf skal valið viðtökunúmer þess bögguls eða bréfs sem fyrst kom á pósthúsið, þ.e. lægsta viðtökunúmerið.

    H

    Vartala til prófunar, færist ekki inn á skýrslu.

    Þjóðerni skal tilgreina í aftari reit með lykli viðkomandi lands, sjá Tollskrár-lykla.

    Gerð svæðis:
    Sendingarnúmer (a18)
    Þjóðerni flutningsfars (a2)
    E-6 (13)