Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu
Þjónustuaðili:
Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1
Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.
Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.
Tilgreinið tegund myntar og heildarfjárhæð reikninganna sem tilheyra sendingunni. Myntin er gefin upp fremst í reitnum sem þriggja stafa skammstöfun (sjá Tollskrárlykla).
Þurfi að umreikna upphæðir milli gjaldmiðla skal nota tollgengi. Tollgengi er kaupgengi sem Seðlabanki Íslands birtir 28. hvers mánaðar (eða næsta virka dag eftir það), og gildir sem tollgengi fyrir tollafgreiðslu allan næsta mánuð. Tollgengið má þó aldrei vera nýrra en það gengi sem var í gildi á útflutningsdegi.
Gerð svæðis:
Lykill myntar (a3)
Heildarfjárhæð (n..11,2)
E-6 (30 og 31)