Fara beint í efnið

Greiðsluþátttaka vegna næringar og sérfæðis

Næring um slöngu (sondunæring)

Sjúkratryggingar greiða það sem er umfram neðangreindar upphæðir fyrir hvern mánaðarskammt:

  • 0-5 ára: 9.000 krónur

  • 6-9 ára: 17.900 krónur

  • 10-12 ára: 26.900 krónur

  • 13-17 ára: 35.900 krónur

  • 18 ára og eldri: 44.900 krónur

Ef næring um slöngu er aðeins hluti af orkuþörf lækkar upphæðin í hlutfalli við það.

  • Samningur er við Icepharma um kaup á næringu um slöngu, fylgihlutum með næringu um slöngu og leigu á dælum (dreifingaraðili: Parlogis, Krókhálsi 14)

  • Dælur eru í eigu Icepharma og ber að skila þangað að notkun lokinni

Upplýsingabæklingur frá samningsaðila:
Icepharma - Nutricia næring um slöngu



Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar