Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Greiðslur vegna vistunar á heimili

Vistun á heimili felur í sér að einstaklingur tekur að sér umönnun eða vistun annarra á eigin heimili gegn greiðslu. Slíkar greiðslur teljast almennt til skattskyldra tekna en heimilt getur verið að færa frádrátt á móti. Skattaleg meðferð ræðst af eðli vistunar, umfangi hennar og því hvort hún telst atvinnurekstur eða ekki.

Dagforeldrar

Greiðslur til dagforeldra fyrir dagvistun barna á heimili teljast rekstrartekjur. Til frádráttar er heimilt að færa sannanlegan kostnað vegna starfseminnar, svo sem fæði, leikföng og hlutfall húsnæðiskostnaðar. Í stað sundurliðunar er heimilt að nota hámarksfrádrátt samkvæmt skattmati.

Sumardvöl barna

Tekjur vegna sumardvalar barna á heimili teljast skattskyldar rekstrartekjur og heimilt er að draga frá sannanlegan kostnað eða hámarksfrádrátt samkvæmt skattmati.

Fósturbörn

Greiðslur vegna vistunar fósturbarna teljast skattskyldar tekjur.

Ef um reglubundna starfsemi er að ræða ber að gera tekjurnar upp sem rekstrartekjur. Til frádráttar má draga frá sannanlegan kostnað af starfseminni.

Ef ekki er um að ræða reglubundna starfsemi er heimilt er að færa frádrátt samkvæmt einni af þremur leiðum:

  1. Sannanlegan kostnað sem beint tengist þessum greiðslum,

  2. frádrátt sem nemur tvöföldum barnalífeyri viðkomandi árs vegna hvers barns eða

  3. framfærslueyrir barns sé kveðið á um að hann sé hærri en sem nemur tvöföldum barnalífeyri í samningi milli sveitarfélags og framteljanda. Fósturlaun teljast þau ætíð til skattskyldra tekna án frádráttar, séu þau greidd.

Nánari útlistun á reglum vegna fósturbarna, auk upplýsinga um barnalífeyri, má nálgast í skattmati.

Stuðningsfjölskyldur

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna vegna vistunar barna teljast skattskyldar. Til frádráttar má færa beinan, sannanlegan kostnað vegna dvalar og umönnunar. Einnig er heimilt að nýta hámarksfrádrátt samkvæmt skattmati.

Vistun aldraðra eða öryrkja

Tekjur vegna vistunar aldraðra eða öryrkja teljast til skattskyldra tekna.

Tekjur af reglubundinni starfsemi sem felst í vistun aldraðra og öryrkja skal gera upp sem rekstrartekjur. Til frádráttar má færa sannanlegan kostnað af starfseminni.

Ef starfsemin telst ekki atvinnurekstur er heimilt að færa frádrátt sem nemur allt að tvöföldum grunnellilífeyri, en þó aldrei hærri fjárhæð en tekjurnar sjálfar.

Nánari útlistun á reglum vegna vistunar aldraðra og öryrkja, auk upplýsinga um grunn ellilífeyri, má nálgast í skattmati.

Mikilvægt er að halda utan um samninga, greiðsluyfirlit og gögn sem styðja frádrátt. Rétt flokkun tekna og frádráttar getur haft áhrif á skattsskyldu.

Ítarefni

  • Hagnýtar upplýsingar og rekstur og greiðslur skatta: Að hefja rekstur

  • Reglur ríkisskattstjóra um hlunnindi og frádrátt: Skattmat

Þjónustuaðili

Skatt­urinn