Fara beint í efnið

Ég er ekki sammála niðurstöðu á ummönnunarmati, hvað get ég gert?

Best er að byrja á því að óska eftir rökstuðningi á niðurstöðunni í gegnum Mínar síður TR, mögulega vantaði gögn til að meta og þá er hægt að bæta úr því með því að skila þeim inn og óska eftir endurskoðun á matinu. Ný umsókn á Mínum síðum TR ásamt fylgigögnum er nauðsynlegt til að biðja um endurskoðun á málinu.