Fara beint í efnið

Sýslumenn: Þinglýsingar, staðfestingar og skráningar

Hvers vegna þarf að skrá kaupmála hjá sýslumanni?

Vegna þess að kaupmáli er einungis gildur ef hann er formlega skráður hjá sýslumanni. Hjón eða hjónaefni þurfa að skrá hann í því umdæmi sem þau eiga lögheimili. Ef þau eiga ekki lögheimili á Íslandi skal skrá kaupmálann hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. 

Sýslumaðurinn á Vesturlandi heldur skrá um kaupmála á landsvísu aftur til ársins 2008 og getur veitt upplýsingar til viðkomandi aðila um kaupmála sem þeir hafa gert. Hann sér einnig um að birta tilkynningu um skráningu kaupmála í Lögbirtingablaðinu. Þar koma fram nöfn aðila, kennitölur, lögheimili og skráningardagur.

Hér má finna nánari upplýsingar um kaupmála.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?