Fara beint í efnið

Sýslumenn: Þinglýsingar, staðfestingar og skráningar

Hver er kostnaður við skráningu kaupmála hjá sýslumanni?

Það kostar 9.700 kr. að skrá kaupmála hjá sýslumanni. Greiða má á staðnum eða millifæra á reikning þess embættis þar sem skráning er gerð.

Ef kaupmálinn segir til um eignayfirfærslu á fasteign eða hluta fasteignar þarf að greiða stimpilgjald sem nemur 0,8% af fasteignamati eignarinnar.

Ef kaupmáli varðar fasteign, skip eða loftfar þarf að þinglýsa kaupmálanum á viðkomandi eign í því umdæmi sem hún er skráð. Þá þarf að greiða þinglýsingargjald sem er 2.700 kr.

Hér má finna nánari upplýsingar um kaupmála. 



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?