Stafrænt Ísland: Loftbrú
Hvar og hvernig get ég nýtt mér Loftbrú?
Til þess að nýta sér Loftbrú er best að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum inn á Ísland.is. Þá kemur strax í ljós hvort viðkomandi eigi rétt á Loftbrú. Þar er einnig að finna yfirlit yfir hversu marga flugleggi á eftir að nota. Þeir sem vilja nýta afsláttinn fá sérstakan afsláttarkóða sem notaður er á bókunarsíðum flugfélaga.
Ef notandi er ekki með rafræn skilríki er hægt að sækja um afsláttarkóða hjá Vegagerðinni. Afgreiðsla afsláttarkóða tekur 2 – 14 daga og fer afgreiðslutími eftir afhendingarmáta. Sé sjálfsafgreiðsla á Ísland.is ekki notuð er sótt um kóða með eftirfarandi hætti:
Gegnum ábendingarkerfi Vegagerðirnar á www.vegagerdin.is.
Með umsóknareyðublaði sem sent er með bréfpósti til Vegagerðarinnar. Eyðublaðið má finna á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?

Stafrænt Ísland