Stafrænt Ísland: Loftbrú
Hverjir eiga rétt á Loftbrú?
Allir íbúar landsbyggðarinnar sem eiga lögheimili á tilteknu svæði fjarri höfuðborgarsvæði auk eyja án vegsambands. Undir Loftbrú falla Vestfirðir, hluti af Norðurlandi vestra, Norðurland eystra, Austurland, Hornafjörður og Vestmannaeyjar. Svæðið er afmarkað með tilliti til póstnúmera.
Börn sem eiga heimili innan Loftbrúarsvæðis hjá forsjáraðila og/eða foreldri eiga rétt á Loftbrú.
Eftir breytingu á skráningu lögheimilis geta liðið allt að 30 dagar þangað til réttur á Loftbrú verður virkur.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?

Stafrænt Ísland