Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Hver má kjósa í sveitastjórnarkosningum?

Í sveitastjórnarkosningum byggir kosningarréttur á lögheimili, en í öðrum kosningum er það fyrst og fremst ríkisborgararéttur. Kosningarétturinn gildir í því sveitarfélagi sem viðkomandi átti síðast skráð lögheimili.
Sama gildir um maka og börn þeirra sem dveljast með þeim í viðkomandi landi.

Íslenskir ríkisborgarar geta kosið ef þeir:

  • eru orðnir 18 ára á kjördag

  • hafa lögheimili á Íslandi

Norrænir ríkisborgarar hafa kosningarétt ef þeir:

  • eru orðnir 18 ára á kjördag

  • eru með lögheimili í sveitarfélaginu

Aðrir erlendir ríkisborgarar hafa kosningarétt ef þeir:

  • eru orðnir 18 ára á kjördag

  • hafa átt lögheimili á Íslandi í 3 ár samfellt fyrir kjördag

Íslenskir námsmenn á Norðurlöndum

Íslenskir námsmenn sem búsettir eru á Norðurlöndunum og eru með lögheimili sitt skráð í eftirtöldum löndum geta kosið í sveitarstjórnarkosningum:

  • Danmörku

  • Finnlandi

  • Færeyjum

  • Grænlandi

  • Noregi

  • Svíþjóð

Athugið! Til að námsmenn á Norðurlöndunum geti kosið í sveitarstjórnarkosningum þurfa þeir að sækja um til Þjóðskrár að vera tekin á kjörskrá í síðasta lagi 40 dögum fyrir kjördag. Senda þarf inn nýja umsókn fyrir hverjar sveitarstjórnarkosningar og henni þarf að fylgja staðfesting á námsvist.