Almyrkvi 12. ágúst 2026

Staðsetningar og skipulagðir áhorfsstaðir
Almykrvinn hefst á Vestfjörðum og fer yfir Vestfirði, Snæfellsnes og Reykjanesskaga. Íbúar á þessu svæði njóta þeirra forréttinda að geta því fylgst með almyrkvanum heiman frá sér og þurfa ekki að fara neitt.
Sólmyrkvinn sést um allt land ef veður leyfir. Hægt er að fylgjast með skýjahuluspá á vef Veðurstofu Íslands.
Góðir staðir til að sjá almyrkvann
Gestir eru hvattir til að nýta skilgreinda safnstaði í þéttbýli til að fylgjast með almyrkvanum.
Safnstaðirnir eru betur undirbúnir til að taka á móti gestum og þar er aðgengi að mikilvægri þjónustu, svo sem salernum, bílastæðum og aðstoð ef þörf krefur.