Fara beint í efnið

Almyrkvi 12. ágúst 2026

Hvenær sést almyrkvinn?

Sólmyrkvinn mun sjást um allt land en almyrkvinn er þó aðeins sjáanlegur á vestanverðu landinu.

Hvenær

  • Dagsetning: Miðvikudaginn 12. ágúst 2026.

  • Tími: Frá 17:44 til 17:49:18 (fer eftir staðsetningu).

Hann byrjar sem deildarmyrkvi (sól sést að hluta) og verður að almyrkva sem varir allt frá hálfri til einnar mínútu eftir svæðum. Sólmyrkvinn allur getur varað í tvær klukkustundir.

Deildarmyrkvi hefst

Almyrkvi hefst

Myrkvinn í hámarki

Almyrkva lýkur

Deildarmyrkva lýkur

Vestfirðir

16:43

17:44

17:45

17:46

18:45

Vesturland

16:44

17:45

17:46

17:47

18:46

Höfuðborgarsvæðið

16:47

17:48:19

17:48:48

17:49:18

18:47

Reykjanes

16:47

17:48

17:49

17:50

18:47

Heimild: Sævar Helgi Bragason / solmyrkvi2026.is

Staðsetningar

Almykrvinn hefst á Vestfjörðum og fer yfir Vestfirði, Snæfellsnes og Reykjanesskaga. Íbúar á þessu svæði njóta þeirra forréttinda að geta því fylgst með almyrkvanum heiman frá sér og þurfa ekki að fara neitt.

Sólmyrkvinn sést um allt land ef veður leyfir. Hægt er að fylgjast með skýjahuluspá á vef Veðurstofu Íslands.

Gagnvirkt sólmyrkvakort

Smelltu hvar sem er á kortið til að sjá allar upplýsingar um sólmyrkvann. Sporaskjan er alskuggi tunglsins.

Heimild: Sævar Helgi Bragason / solmyrkvi2026.is

Góðir staðir til að sjá almyrkvann

Gestir eru hvattir til að nýta skilgreinda safnstaði í þéttbýli á Vestfjörðum til að fylgjast með almyrkvanum.

Safnstaðirnir eru betur undirbúnir til að taka á móti gestum og þar er aðgengi að mikilvægri þjónustu, svo sem salernum, bílastæðum og aðstoð ef þörf krefur.

Skipulagðir áhorfsstaðir og takmarkanir á aðgengi

Með því að velja hentugan stað nálægt heimili getur hver og einn lagt sitt af mörkum við að takmarka umferð og jafnframt stuðla að almannaöryggi og vernd viðkvæmra svæða. Íbúar í öðrum landshlutum geta séð deildarmyrkva.

Almyrkvi 12. ágúst 2026

Almannavarnir

Lögreglan

Vegagerðin

Ferðamálastofa

Markaðsstofur landshlutanna