Almyrkvi 12. ágúst 2026

Um almyrkvann
Vísindalegur fróðleikur
Hver er munurinn á sólmyrkva og almyrkva á sólu?
...
Hvers vegna verða sólmyrkvar?
Sólmyrkvar eiga sér stað fyrir merkilega tilviljun. Sólin er 400 sinnum lengra frá Jörðinni en tunglið en líka 400 sinnum stærri að þvermáli. Þar af leiðandi sýnast sólin og tunglið jafn stór á himninum eða 1/2 gráða. Þau passa fullkomlega saman – en aðeins ef uppröðunin er rétt.
Tunglið er um það bil einn mánuð að ferðast í kringum Jörðina. Þetta ferðalag tunglsins færir það nær sólinni við „nýtt tungl“ – þegar tunglið er milli Jarðar og sólar.
Sporbraut tunglsins hallar svo oftast fer skuggi tunglsins undir eða yfir Jörðina. En þegar uppröðunin er hárrétt og tunglið í réttri fjarlægð frá Jörðinni gengur það fyrir sólina og hylur hana alveg. Tunglið varpar þá keilulaga skugga á örmjóa slóð á Jörðinni. Ef þú ert á slóðinni, undir alskugga tunglsins á réttum stað á réttum tíma, verður þú vitni að ótrúlegustu sýningu náttúrunnar: Almyrkva á sólu.
Almyrkvaslóðin er venjulega í kringum 200 km breið. Utan hennar sérðu aðeins deildarmyrkva, þ.e. þegar sólin er að hluta til myrkvuð. Deildarmyrkvar eru fallegir en ekki nándar nærri jafn tilkomumiklir og almyrkvar. Það er ekkert til sem heitir 99,9% almyrkvi. Þetta 0,1% sem upp á vantar jafngildir muninum á degi og nóttu. Vertu því alveg viss um að þú sért á réttum stað.
Heimild: Sævar Helgi Bragason og Andreas Dill / solmyrkvi2026.is
Hversu sjaldgæfir eru almyrkvar á sólu?
Almyrkvi á sólu er sjaldséð sjón frá hverjum tilteknum stað á Jörðinni. Útreikningar belgíska reiknimeistarans Jean Meeus sýna að 375 ár líða að meðaltali milli almyrkva frá tilteknum stað. Sem dæmi líða 593 ár á milli almyrkva frá Reykjavík (1433-2026) og 1505 ár milli almyrkva frá Akureyri (1469-2974).
Frá því að Ísland var numið í kringum árið 870 hefur alskuggi tunglsins snert Ísland tólf sinnum. Frá 2026 til ársins 3000 upplifa Íslendingar aðeins átta almyrkva í viðbót.
Heimild: Sævar Helgi Bragason / solmyrkvi2026.is
Hve lengi standa almyrkvar yfir?
Almyrkvar á sólu standa mjög mislengi yfir, allt frá örfáum sekúndum upp í um það bil sjö og hálfa mínútu. Lengd almyrkva veltur á fjarlægð tungls frá Jörðinni og hvar á Jörðinni myrkvinn er. Ef tunglið er í jarðnánd, næst Jörðu, getur almyrkvinn verið langur.
Sé tunglið í jarðfirrð, lengst frá Jörðinni, sést ekki almyrkvi heldur hringmyrkvi. Þá er tunglið of langt í burtu til þess að hylja sólina alveg. Hringmyrkvar eru ákaflega fallegir líka. Seinast sást hringmyrkvi frá Íslandi 31. maí 2003 en næst 11. júní 2048.
Lengdin veltur líka á því hversu nálægt miðju almyrkvaslóðarinnar athugandi er. Nálægt jaðrinum sést almyrkvi í aðeins örfáar sekúndur en nær miðlínunni sést myrkvi jafnan í fáeinar mínútur.
Heimild: Sævar Helgi Bragason og Andreas Dill / solmyrkvi2026.is
Hvar og hvenær er næsti almyrkvi?
Eftir 2026 fellur alskuggi tunglsins næst á Jörðina þann 2. ágúst 2027. Þá sést almyrkvi frá Gíbraltarsundi, norðurhluta Afríku í gegnum Egyptaland og Sádí Arabíu.
Heimild: Sævar Helgi Bragason / solmyrkvi2026.is
Frekari upplýsingar
Sólmyrkvi 2026 – Almyrkvi á sólu– Ítarlegur upplýsingavefur í ritstjórn Sævars Helga Bragasonar.
Stjörnufræðivefurinn– Almenn fræðsla um stjörnufræði og himingeiminn í ritstjórn Sævars Helga Bragasonar.