Almyrkvi 12. ágúst 2026

Góð ráð til ferðafólks
Heima er (víðast hvar) best
Fylgjumst með viðburðinum að heiman. Víðast hvar á vestanverðu landinu er hægt að upplifa almyrkvann frá heimilum eða í nærumhverfi fólks. Íbúar í öðrum landshlutum munu geta séð deildarmyrkva. Förum ekki í stutt erindi að nauðsynjalausu meðan á viðburðinum stendur.
Mætum snemma og dveljum lengur
Fólk sem hyggst ferðast til að sjá almyrkvann er hvatt til að mæta snemma og dvelja lengur. Með því að ferðast fyrr um daginn og bíða með brottför eftir að myrkvanum lýkur má draga úr umferðartöfum og stuðla að öruggari umferð.
Verum vel undirbúin
Verið vel undirbúin fyrir ferðalagið og kynnið ykkur ferðaleið og áfangastað. Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferðatíma. Gætið þess að vera með nægt eldsneyti eða hleðslu á bifreiðum. Gætið að hreinlæti, að matvæli sé geymd við fullnægjandi aðstæður
Höfum augun á veginum
Munum að fara varlega og vera ekki með hugann við farsíma heldur með augun á veginum. Virðum öll hraðamörk og spennum bílbeltin.
Sýnum þolinmæði
Sýnum þolinmæði þegar tímabundnar biðraðir myndast. Fylgjum leiðbeiningum yfirvalda og viðbragðsaðila ef upp koma erfiðar aðstæður. Styðjumst við opinberar upplýsingaveitur fyrir nýjustu upplýsingar.
Frekari upplýsingar
Vegagerðin – Upplýsingavefur um almyrkva – Allt um vegalokanir, umferðarstýringu og undirbúning vegna álags á vegakerfið.
Umferðin.is– Gagnvirkt kort Vegagerðarinnar sem sýnir færð, umferð og ástand vega í rauntíma.
SafeTravel – Sólmyrkvi á Íslandi– Opinberar öryggisleiðbeiningar og ábendingar fyrir ferðafólk.
Ferðamálastofa – Upplýsingavefur– Upplýsingar og leiðbeiningar tengdar ferðaþjónustu og skipulagi í kringum almyrkvann.