Almyrkvi á sólu 12. ágúst

Öryggi og augnheilsa
Notum sérstök sólmyrkvagleraugu eða síur til að fylgjast með.
Venjuleg sólgleraugu eru ekki örugg til að horfa beint í sólina.
Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstökum síum sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun og minnka birtu sólarinnar niður á öruggt stig.
Sólmyrkvagleraugu þurfa að vera vottuð og merkt alþjóðlega öryggisstaðlinum ISO 12312-2 og þú þarft að ganga úr skugga um að þau virki. Það er hægt að gera með því að bera þau upp að ljósi til að athuga hvort þau séu rispuð, með rifu eða gati.
Nota þarf gleraugun í öllum deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva.
Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.
Horft með hléum
Þegar þú ætlar að fylgjast með almyrkva setur þú gleraugun fyrst á þig, horfir í nokkrar sekúndur og lítur síðan undan. Þetta ferli er síðan hægt að endurtaka en alltaf gera hlé inn á milli.
Frekari upplýsingar
Mælt er með að kaupa sólmyrkvagleraugu hjá viðurkenndum söluaðilum. Á vefsíðunni https://solmyrkvagleraugu.is/ má finna úrval af sólmyrkvagleraugum.

Leiðbeiningar frá Embætti landlæknis um verndun augna þegar fylgst er með almyrkva á sólu og deildarmyrka
Sjónhimnan getur orðið fyrir varanlegum skaða á nokkrum sekúndum, ef horft er beint í sólina. Einkenni geta komið fram nokkrum klukkustundum síðar, sem minnkuð eða brengluð sjón, breytt litasýn, móðusýn, minnkuð skerpa, blindur blettur eða blinda.
Leiðbeiningar um vörn fyrir augu þegar fylgst er með sólmyrkva byggja á reglugerð Evrópusambandsins (ESB) 2016/425 um persónuhlífar, sem hefur verið tekin inn í EES-samninginn og gildir því á Íslandi.
Nauðsynlegt er að nota örugg sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum.
Sólmyrkvagleraugu skulu uppfylla EN ISO 12312-2:2015 staðalinn og bera CE-merkingu sem sýnir að þau uppfylli kröfur. Þessi gleraugu eru hönnuð til að vernda augun gegn sterkri sólargeislun og eru flokkuð sem persónuhlífar. Venjuleg sólgleraugu veita ekki nægilega vernd og ætti ekki að nota þau til að horfa á sólina. Ávallt skal skoða sólmyrkvagleraugu áður en þau eru notuð og ganga úr skugga um að þau séu óskemmd. Sjá einnig: Öryggi augna - Hvernig á að fylgjast með sólmyrkva á öruggan hátt? | Sólmyrkvi 2026
Gátlisti – Sólmyrkvagleraugu
Gangið úr skugga um að gleraugun uppfylli EN ISO 12312-2:2015 staðalinn
Gangið úr skugga um að gleraugun beri CE-merkingu
Notið gleraugun alltaf við deildarmyrkva og almyrkva
Notið ekki venjuleg sólgleraugu
Skoðið gleraugun áður en þau eru notuð (þau mega ekki vera rifin eða rispuð)
Notið aðeins vottaðar vörur frá traustum framleiðendum
Horfið ekki beint á sólina án sólmyrkvagleraugna.
Horfið ekki á sólina í gegn um myndavélalinsur, kíki eða snjallsíma án viðurkenndra varna (filter, sólmyrkvagleraugu)
Athugið sérstaklega
Minnkandi birtustig er blekkjandi og getur leitt til þess að fólk gleymi að verja augun.
Að þegar almyrkvi á sér stað þarf að taka af sér sólmyrkvagleraugun til að sjá hina eiginlegu sólkórónu. Þetta augnablik þar sem óhætt er að horfa berum augum á sólmyrkvann varir í u.þ.b. 2 mín vestast á landinu og um 1 mín á höfuðborgarsvæðinu
Það þarf að setja á sig gleraugun um leið og sólin fer að ná í gegn á ný
Allir sem eru ekki á almyrkvasvæði (restin af landinu) þurfa að vera meðsólmyrkvagleraugu allan tímann
Sérstaklega þarf að horfa til öryggis barna
Óttist þú að hafa að hafa orðið fyrir ljósskaða skaltu leita læknis án tafar
Fyrstu viðbrögð við hugsanlegum ljósskaða á augum
Sjónhimnan getur orðið fyrir varanlegum skaða á nokkrum sekúndum, ef horft er beint í sólina. Einkenni geta komið fram nokkrum klukkustundum síðar, sem minnkuð sjón, blindur blettur eða blinda.
Leiðbeiningar um vörn fyrir augu þegar fylgst er með sólmyrkva byggja á reglugerð Evrópusambandsins (ESB) 2016/425 um persónuhlífar, sem hefur verið tekin inn í EES-samninginn og gildir því á Íslandi.
Nauðsynlegt er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu hvort sem er við deildarmyrkva eða almyrkva, vegna þess að ekki er öruggt að horfa beint á sólina án viðeigandi síu.
Sólmyrkvagleraugu skulu uppfylla EN ISO 12312-2:2015 staðalinn og bera CE-merkingu sem sýnir að þau uppfylli kröfur. Þessi gleraugu eru hönnuð til að vernda augun gegn sterkri sólargeislun og eru flokkuð sem persónuhlífar. Venjuleg sólgleraugu veita ekki nægilega vernd og ætti ekki að nota þau til að horfa á sólina. Ávallt skal skoða sólmyrkvagleraugu áður en þau eru notuð og ganga úr skugga um að þau séu óskemmd.
Sjá einnig: Öryggi augna - Hvernig á að fylgjast með sólmyrkva á öruggan hátt? | Sólmyrkvi 2026
Gátlisti – Fyrstu viðbrögð vegna mögulegs ljósskaða
Helstu einkenni ljósskaða á sjónhimnunni eru meðal annars minnkuð eða brengluð sjón, breytt litasýn, móðusýn, minnkuð skerpa, blindur blettur eða blinda.Önnur einkenni geta fylgt, þar á meðal höfuðverkur og ljósnæmi.
Mikilvægt er að hvíla augun ef grunur leikur á um að þau hafi orðið fyrir ljósskaða.
Fyrsta ráðið er að hætta að horfa í sólina.
Forðast ber skæra birtu og sterk ljós.
Hvíla ætti augun með því að setja upp sólgleraugu.
Engir sársaukaviðtakar eru í sjónhimnunni. Verkjalyf hjálpa því ekki.
Engin sértæk meðferð er til við ljósskaða á sjónhimnunni.
Einkenni vegna ljósskaða geta gengið til baka en geta einnig verið óafturkræf. Ef grunur er um skaða á sjón er mikilvægt að hafa samband við heilsugæslu eða augnlækni til að fá ráð og láta meta hugsanlegan skaða.