Fara beint í efnið

Almyrkvi 12. ágúst 2026

Um vefinn

Á þessari upplýsingagátt er upplýsingum um almyrkvann 12. ágúst 2026 á vegum stjórnvalda, stofnana og viðbragðsaðila safnað saman á einum stað.

Fólk er hvatt til að fylgjast með upplýsingum og tilkynningum um veður, umferð og ýmis öryggisatriði þegar nær dregur.

Ritnefnd á vegum Stjórnarráðsins bera ábyrgð á upplýsingagáttinni en Sævar Helgi Bragason og markaðsstofur landshlutanna veita ráðgjöf.

Íslensk stjórnvöld, ferðaþjónustan og markaðsstofur landshlutanna hafa unnið hörðum höndum að víðtækum undirbúningi til að tryggja öryggi og hnökralaust flæði.

Í hverju felst undirbúningur stjórnvalda vegna almyrkvans?

Vegna töluverðs áhuga á almyrkvanum má búast við miklu álagi á innviði, samgöngur, viðkvæm náttúrusvæði og viðbragðsaðila á svæðum þar sem almyrkvinn verður sýnilegur.

Stýrihópur af hálfu stjórnvalda var skipaður til að hafa yfirsýn yfir verkþætti sem tengjast viðburðinum. Undir forystu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra starfar einnig samráðsvettvangur helstu hagaðila þar sem farið er yfir stöðu mála, áhættumat og upplýsingagjöf.

Þrátt fyrir samhæfingu á landsvísu bera einstök sveitarfélög, lögregluembætti og stofnanir ábyrgð á sínu svæði líkt og venja er á öðrum álagsdögum.

Vegagerðin og lögreglan hafa þegar undirbúið ýmsar ráðstafanir vegna umferðar, s.s. vegalokanir og umferðartakmarkanir.

Á þessari upplýsingagátt á Ísland.is er upplýsingum um almyrkvann safnað á einum stað. Einnig er fólk hvatt til að fylgjast með upplýsingum og tilkynningum um veður, umferð og ýmis öryggisatriði þegar nær dregur.

Almyrkvi 12. ágúst 2026

Almannavarnir

Lögreglan

Vegagerðin

Ferðamálastofa

Markaðsstofur landshlutanna