Fara beint í efnið

Almyrkvi á sólu 12. ágúst

Höfuðborgarsvæðið

Skilgreindir safnstaðir er í eftirfarandi byggðakjörnum:

  • Seltjarnarnes:

    Suðurströnd

  • Reykjavík:

    Ægisíða

  • Garðabær:

    Álftanes – fjaran vestan við íþróttasvæðið

Hafnarfjörður: Hamarinn (bílastæði við Flensborgarskóla) og Ástjörn (bílastæði við íþróttasvæði Hauka

Takmarkanir á aðgengi

  • Seltjarnarnes:

    Suðurströnd verður lokuð fyrir bílaumferð frá Vivaldi-velli / Sundlaug að austanverðu og við Lindarbraut og Nesbala að vestan frá kl. 15.00 til 20.00. Allar þvergötur sem liggja að Suðurströnd verða einnig lokaðar. Bent er á bílastæði við sundlaug, Austurströnd og Eiðistorg.

  • Seltjarnarnes:

    Lokað verður fyrir akstur um Norðurströnd vestan Lindarbrautar frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Bent er á bílastæði við Austurströnd og Eiðistorg.

  • Seltjarnarnes:

    Ekki er leyfilegt að fara út í Gróttu þann 12. ágúst. Flóð er á meðan almyrkva stendur. Akstursleið út að Gróttu verður lokuð við Lindarbraut frá kl. 15.00 og til kl. 20.00.

  • Reykjavík:

    Suðurgata verður lokuð fyrir akstri við Hringbraut frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Allar þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar nema Þórsgata en um hana er opið fyrir umferð í Skerjafjörð.

  • Reykjavík:

    Ægisíða verður lokuð fyrir bílaumferð við Hofsvallagötu, Fornhaga og Dunhaga frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Einnig verður lokað fyrir bílaumferð við Lynghaga og Starhaga á þessum tíma.

  • Garðabær:

    Einstefna verður á Álftanesvegi og Suðurnesvegi frá hringtorgi við Bessastaðaafleggjara frá kl. 15.00 til 20.00. Bent er á bílastæði við íþróttasvæði og sundlaug sem og á túnunum vestan við íþróttasvæðið.

Nánari upplýsingar

Allar upplýsingar um almyrkvann og höfuðborgarsvæðið eru á vef Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins