Nám og menningarskipti
Þú hefur sótt um dvalarleyfi fyrir námsmenn, au pair, sjálfboðaliða eða trúboða
Umsækjendur um dvalarleyfi geta því miður ekki skráð sig inn á vef Útlendingastofnunar til að fá upplýsingar um stöðuna á umsókn sinni.
Á upplýsingasíðu um stöðu mála og afgreiðslutíma getur þú fylgst með því hvaða umsóknir er verið að taka til vinnslu út frá upplýsingum um hvenær umsóknir voru lagðar fram. Umsóknir sem bárust síðar en í þeim mánuði sem tiltekinn er á síðunni bíða þess að verða teknar til vinnslu.
Á meðan umsóknir bíða þess að verða teknar til vinnslu fást ekki frekari upplýsingar varðandi umsóknina í síma, tölvupósti eða netspjalli.
Ekki er hægt að segja nákvæmlega til um hversu lengi þú þarft að bíða eftir svari við umsókn um dvalarleyfi á grundvelli náms eða menningarskipta. Margt hefur áhrif á biðtímann, til dæmis hversu margar umsóknir bíða afgreiðslu hjá Útlendingastofnun, hvort þú hafir lagt fram fullbúna umsókn eða hvort við þurfum að óska eftir frekari upplýsingum frá þér.
Umsóknir um námsmannaleyfi, sem berast með fullnægjandi gögnum innan frests, verða afgreiddar áður en skólahald hefst.
Árið 2025 var meðalafgreiðslutími samþykktra umsókna um fyrstu dvalarleyfi fyrir námsmenn 2,5 mánuðir og 5 mánuðir fyrir au pair, trúboða og sjálfboðaliða.
Nei það er ekki hægt að óska eftir flýtimeðferð.
Fullbúnar umsóknir, sem lagðar eru fram með öllum nauðsynlegum fylgigögnum á því formi sem krafist er, er hægt að afgreiða hraðar.
Afgreiðslutíminn getur lengst ef:
umsókn hefur ekki verið fyllt út nægilega vel,
kalla þarf eftir frekari gögnum,
boða þarf umsækjanda í viðtal eða
umsækjandi hefur óskað eftir undanþágu frá skilyrðum.
Til að draga umsókn til baka þarftu að hafa samband við Útlendingastofnun.
Upplýsingar um nafn, fæðingardag og netfangið sem þú skráðir í umsóknina þína þurfa að koma fram í erindinu.
Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt þú hættir við umsókn.
Viðbótargögn, sem ekki þurfa að vera í frumriti, má senda með tölvupósti á utl@utl.is. Gögnin þurfa að vera merkt með fullu nafni umsækjanda og fæðingardegi.
Gögn sem leggja þarf fram í frumriti á pappír getur þú sent í pósti til Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi, afhent í afgreiðslu eða lagt í skilakassa í anddyri.
Til að láta vita um breytingar hjá þér, til dæmis nýtt heimilisfang, símanúmer eða netfang, þarftu að hafa samband við Útlendingastofnun.
Þú ættir einnig að láta okkur vita um nýjar upplýsingar sem gætu haft áhrif á umsókn þína, til dæmis ef þú hefur fengið nýtt vegabréf, gengið í hjónaband eða eignast barn.
Ef þú þarft áritun til að ferðast til Íslands máttu hvorki vera á landinu þegar umsókn um dvalarleyfi fyrir námsmann, sjálfboðaliða, trúboða eða au pair er lögð fram né á meðan umsóknin er í vinnslu. Slíkri umsókn verður synjað.
Ef þú þarft ekki áritun til að ferðast til Íslands máttu vera á landinu þegar umsókn er lögð fram og er til meðferðar hjá Útlendingastofnun, svo lengi sem 90 daga áritunarfrelsi þitt varir. Fari dvöl þín á Schengen-svæðinu fram yfir 90 daga á síðastliðnum 180 dögum verður umsókn synjað nema ríkar sanngirnisástæður eigi við.
Athugaðu hvort þú þurfir vegabréfsáritun til að ferðast til Íslands
Námsmenn þurfa ekki að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi til að mega vinna á Íslandi en þeir mega ekki byrja að vinna fyrr en eftir að hafa fengið útgefið dvalarleyfi.
Umsækjendur um dvalarleyfi sem trúboðar og sjálfboðaliðar mega ekki vinna launað starf á Íslandi.
Umsækjendur um dvalarleyfi sem au pair mega hvorki vinna launað né ólaunað starf á Íslandi.