Nýjar leiðbeiningar um meðferð umsókna um sameiginlega vernd
24. ágúst 2026
Breytingarnar gilda um nýjar umsóknir og hafa ekki áhrif á þá sem þegar njóta sameiginlegrar verndar á Íslandi.

Dómsmálaráðherra hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um meðferð umsókna um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta frá Úkraínu. Leiðbeiningarnar gilda um nýjar umsóknir og hafa ekki áhrif á einstaklinga sem þegar njóta sameiginlegrar verndar á Íslandi.
Breytingarnar varða annars vegar einstaklinga sem eru með gilt dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar í öðru Evrópuríki og hins vegar einstaklinga sem ekki geta sýnt fram á að hafa haft heimild til að yfirgefa Úkraínu.
Tímabundin vernd í öðru ríki
Frá og með 23. ágúst 2026 mun Útlendingastofnun ekki veita dvalarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta til einstaklinga sem eru með gilt dvalarleyfi á grundvelli tímabundinnar verndar í aðildarríki Evrópusambandsins eða sambærilegt leyfi í Danmörku, Noregi, Sviss eða Liechtenstein.
Útlendingastofnun metur umsóknir einstaklingsbundið og er heimilt að gera undanþágu vegna tiltekinna fjölskyldutengsla við einstaklinga sem búsettir eru á Íslandi og njóta sameiginlegrar verndar.
Brottför frá Úkraínu og skyldur gagnvart her landsins
Einstaklingum sem yfirgefa Úkraínu eftir 23. ágúst 2026 verður ekki veitt sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta nema þeir geti sýnt fram á að þeir hafi haft heimild úkraínskra stjórnvalda til að yfirgefa landið, með tilliti til skyldna sem kunna að hvíla á þeim samkvæmt úkraínskum lögum.
Sönnunarbyrðin hvílir á umsækjanda. Sýna þarf fram á lögmæta brottför frá Úkraínu, svo sem með framvísun á brottfararstimpli í vegabréfi. Ef ekki er unnt að staðfesta lögmæta brottför þarf umsækjandi að framvísa opinberu skjali, á pappír eða rafrænu formi, sem staðfestir að á viðkomandi hvíli ekki skyldur gagnvart her landsins. Úkraínskir ríkisborgarar sem ekki sæta herskyldu kunna engu að síður að bera skyldur vegna herþjónustu, óháð aldri eða kyni.
Þeir sem uppfylla ekki skilyrði sameiginlegrar verndar geta eftir sem áður sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi. Slíkar umsóknir eru metnar sjálfstætt samkvæmt lögum um útlendinga.
Nánari upplýsingar um skilyrði sameiginlegrar verndar og þau gögn sem umsækjendur þurfa að leggja fram má finna á upplýsingasíðu um dvalarleyfi á grundvelli sameiginlegrar verndar.