Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Velkomin til TR á Ísland.is

5. apríl 2024

Skýrar upplýsingar eru meðal þess sem við hjá TR leggjum áherslu á í starfi okkar. Á vefnum tr.is má finna mikið af fróðleik um réttindi og greiðslur almannatrygginga. Nú höfum við uppfært allt efnið og sett það upp á aðgengilegan hátt á vefnum Ísland.is.

Flutningur TR til Ísland.is

Þar er einnig aðgangur að Mínum síðum TR og reiknivél lífeyris sem er afar mikið notuð. Vefurinn tr.is verður opinn til 10. apríl nk., en eftir það vísum við á Ísland.is.

Með flutningi á Ísland.is viljum við einfalda leit að upplýsingum um almannatryggingar og auðvelda notendum að finna upplýsingar um réttindi og greiðslur í kerfinu. Hluti af flutningnum á Ísland.is felst í að setja upp þjónustuvef þar sem finna má svör við algengum spurningum þannig að notendur eru leiddir áfram til að finna rétt svar. Það er mun öflugri þjónusta en við höfum getað boðið uppá hingað til og mikið framfaraspor.

Við vonum að flutningur tr.is á Ísland.is muni gagnast notendum vefsins sem allra best og bjóðum ykkur öll velkomin til TR á Ísland.is