Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Vel heppnuð 90 ára afmælisráðstefna

1. október 2026

Níutíu ára afmæli almannatrygginga var fagnað með ráðstefnu í Hörpu í gær, sem Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun stóðu að. Þar var farið yfir sögu almannatrygginga, þróun og horft til framtíðar bæði hér á landi og alþjóðlega.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra ávörpuðu bæði ráðstefnuna og ræddu meðal annars um mikilvægi og umfang málaflokksins, sem öryggisnets í samfélaginu. Síðan fluttu forstjórar stofnananna þriggja sem stóðu að ráðstefnunni erindi og fjölluðu um söguna, þróun almannatrygginga sem og starfsemi stofnana ásamt því að horfa til framtíðar. Í pallborði hagaðila var meðal annars ítrekað hvað samráð og samstarf skipti miklu máli. Ljóst er að innleiðing á nýju kerfi örorkulífeyris- og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna fyrir rúmu ári var mikil áskorun fyrir alla aðila og mikilvægt er að hafa gott samráð og samtal á milli aðila í slíku breytingaferli.

Þrjú erindi voru flutt um samspil atvinnulífs og almannatrygginga og þar var meðal annars fjallað um mikilvægi lífeyrissjóða og þá stoð sem þeir mynda í lífeyriskerfinu. Einnig var fjallað um aðkomu verkalýðshreyfingarinnar sem og atvinnurekenda að lífeyriskerfinu.

Rannsókn sem TR gerði ásamt Vinnueftirlitinu, Velferðarvaktinni og félags- og húsnæðismálaráðuneytinu á árinu 2025 um reynslu og aðstæður kvenna með örorkulífeyri var kynnt. Þar kom meðal fram að yfir 20% kvenna frá 60 ára eru með örorkulífeyri og fjölmargar þeirra hafa unnið líkamlega erfið störf og borið ábyrgð á umönnun barna sinna. Hvatt er til frekari rannsókna á sviði almannatrygginga.

Alþjóðlegir gestir frá OECD, Alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana (ISSA) og fjölskyldumálaráðuneyti Möltu ræddu stöðuna í almannatryggingum í dag og þá framtíðarsýn sem blasir við. Samhljómur var með erindum og erindin á fyrri hluta ráðstefnunnar, svo sem ákveðnar áhyggjur af mannfjöldaþróun en vitað er að fólk lifir lengur og eignast færri börn en áður, ekki bara hér á landi heldur er þetta alþjóðleg þróun. Þar af leiðandi er þörf á meiri mannafla til að annast þá sem eldast. Til umræðu kom einnig spurning um sjálfbærni kerfanna til framtíðar en óljóst er hver áhrif tækninnar verða á vinnumarkaðinn og almannatryggingar. Loks var bent á áhrif loftslagsbreytinga til lengri tíma á samfélög.

Í pallborði þar sem forstjórar og framkvæmdastjórar frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Íslandi ræddu um norræna módelið, stöðu þess og framtíðarsýn kom meðal annars fram að stofnanirnar allar leggja mikla áherslu á að þjónusta viðskiptavini með sem bestum hætti. Eitt af krefjandi verkefnunum er að skapa og viðhalda trausti og vera fær um að sýna sveigjanleika í samræmi við síbreytilegar kröfur samtímans.

Síðast á dagskránni var afhending afmælisgjafar TR til ungs fólks í framhaldsskólum í formi kennsluefnis um almannatryggingar og velferð. Við gjöfinni tóku fulltrúar Félags lífsleiknikennara í framhaldsskólum. Við munum gera nánari grein fyrir gjöfinni hér á tr.is á næstunni.

Um 400 manns sóttu ráðstefnuna sem þótti takast mjög vel.

Dagskrána í heild og fleira fróðlegt efni má nálgast hér á vefnum almannatryggingar.is