Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Tryggingastofnun eykur öryggi með rafrænni auðkenningu í þjónustu

3. júlí 2026

Tryggingastofnun hefur innleitt auðkenningu með rafrænum skilríkjum og auðkennisappi í samskiptum við viðskiptavini. Þetta á við þjónustu í síma, í þjónustumiðstöð og við móttöku fyrirspurna.

Markmiðið með rafrænni auðkenningu viðskiptavina í samskiptum við TR er að tryggja að aðeins réttur aðili hafi aðgang að eigin upplýsingum.

Öryggi og persónuvernd viðskiptavina eru í forgangi hjá TR og með rafrænni auðkenningu getum við tryggt að meðferð upplýsinga sé ávallt í samræmi við ströngustu kröfur um persónuvernd.

Óskað verður eftir rafrænni auðkenningu:

  • í síma; viðskiptavinir auðkenna sig áður en upplýsingar eru veittar

  • í þjónustumiðstöð í Hlíðasmára 11; viðskiptavinir auðkenna sig áður en þjónustufulltrúi veitir viðskiptavini upplýsingar.

  • Við svörun fyrirspurna til TR í Hafðu samband á tr.is; þar sem viðskiptavinur auðkennir sig rafrænt áður en hann/hún sendir fyrirspurnina.

  • Í tölvupósti; þar fær viðskiptavinur beiðni um auðkenningu eftir að hafa sent fyrirspurn til TR.

Á næstunni munum við bæta við þeim möguleika í netspjalli að viðskiptavinur sendi fyrirspurn til þjónustufulltrúa. Í þeim samskiptum verður einnig óskað eftir rafrænni auðkenningu.

Rafræn auðkenning er einföld í notkun og flestir Íslendingar þekkja hana nú þegar úr daglegum samskiptum við opinberar stofnanir, banka og ýmis fyrirtæki.

Tryggingastofnun hvetur viðskiptavini til að kynna sér notkun rafrænna skilríkja og auðkennisappsins hjá Auðkenni.