TR fyrst að birta efni á auðlesnu máli á Ísland.is
4. mars 2026
Efni á auðlesnu máli um örorkulífeyri og sjúkra- endurhæfingargreiðslur hefur verið birt á tr.is og er það í fyrsta sinn sem efni á auðlesnu máli er birt á Ísland.is.

Efnið var unnið af Miðstöð um auðlesið mál til að tryggja að það uppfylli skilyrði um framsetningu. Á vef þeirra segir meðal annars um auðlesið mál: „Auðlesið mál er ekki einungis einföldun heldur mikilvægt aðgengistæki. Það tryggir að einstaklingar með lestrar- eða lesskilningsörðugleika hafi sama aðgang að upplýsingum og aðrir. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) leggur áherslu á að tryggja rétt fatlaðra til að fá upplýsingar á máli sem þeir skilja. Með auðlesnu máli stuðlum við að jöfnum tækifærum og sjálfstæði allra.“
TR leggur ríka áherslu á gott aðgengi viðskiptavina að upplýsingum og er þetta eitt skref til að mæta þörfum okkar fjölbreytta viðskiptavinahóps. Við erum stolt af því að hafa tekið þetta skref og leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að bæta aðgengi allra að upplýsingum á tr.is.
Um er að ræða tilraunaverkefni TR í nánu samstarfi við Stafrænt Ísland og eru þeim færðar góðar þakkir fyrir sitt innlegg.