TR fær viðurkenningu fyrir níu stafræn skref
25. september 2026
Það var ánægjulegt að fá viðurkenningu fyrir að hafa lokið níu stafrænum skrefum til að nýta til fulls sameiginlegar lausnir sem Stafrænt Ísland býður uppá á Ísland.is. Viðurkenningin var afhent á ráðstefnunni Tengjum ríkið.

Huld Magnúsdóttir (önnur frá vinstri) tekur við viðurkenningunni fyrir hönd TR
Í fréttinni segir meðal annars: „Stofnunin hefur verið í miklum umbóta- og breytingafasa að undanförnu, ekki aðeins með innleiðingu stafrænu lausnanna heldur einnig stórri kerfisbreytingu sem var eitt stærsta umbótaverkefni í almannatryggingum í áratugi þegar nýtt örorku- og endurhæfingakerfi tók gildi síðastliðið haust.“
Skrefin sem um ræðir eru; Stafræna pósthólfið, innskráningar- og umboðskerfið, Ísland.is appsins, Umsóknakerfið, Mínar síður á Ísland.is, Straumurinn (X-Road), vefur innan Ísland.is, Þjónustukerfi og AI aðstoð.
Hlekkur á frétt á Ísland.is
