Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Sífellt meiri áhersla á endurhæfingu

21. september 2026

Nýtt viðtal við Huld Magnúsdóttur, forstjóra TR, um 90 ára afmæli almannatrygginga og starfsemi TR birtist í Morgunblaðinu í dag.

Í viðtalinu kemur meðal annars fram að afmælisráðstefna almannatrygginga verði haldin í Hörpu þann 30. september, að almannatryggingar byggist á grunnhugmyndafræði um öryggisnet þegar á þarf að halda og að sífellt sé lögð meiri áhersla á endurhæfingu til að fólk geti sett fókus á að ná heilsu og eiga endurkomu á vinnumarkað.

Lesa má viðtalið við Huld í heild sinni hér að neðan:

Almannatryggingar á Íslandi, sem eru 90 ára um þessar mundir, eru ein af stoðum velferðarkerfisins, segir Huld Magnúsdóttir forstjóri Tryggingastofnunar. Af nefndu tilefni, 90 árunum, er efnt til ráðstefnu í Hörpu þann 30. september þar sem hið samfélagslega öryggisnet verður rætt í stóru samhengi, það er almannatryggingar, lífeyrisgreiðslur, heilbrigðistryggingar og vinnumarkaðsúrræði.
„Allt er þetta stuðningsnet sem ákveðið er af yfirvöldum á hverjum tíma en almannatryggingakerfið byggist á grunnhugmyndafræði um öryggisnet þegar á þarf að halda. Á þeim 90 árum sem eru liðin hefur íslenskt samfélag, efnahagur og lífskjör tekið stakkaskiptum. Almannatryggingakerfið hefur þróast samhliða þessum breytingum, stækkað og aðlagast nýjum þörfum,“ segir Huld um kerfið og samfélagið sem því er ætlað að sinna.
Árið 1936 voru miklir erfiðleikar í atvinnu- og efnahagslífi hér á landi og víða um heim vegna heimskreppunnar. Það hafði eflaust mikil áhrif á að lög um alþýðutryggingalög voru samþykkt 1. febrúar 1936 en þau tóku gildi 1. apríl sama ár. Þetta var í tíð ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Alþýðuflokks, en bætt kjör og aðstæður almennings voru sérstök áherslumál í samstarfi flokkanna.

Formfesta aðstoð samfélags
Fyrstu lög um alþýðu- eða almannatryggingar fjölluðu um slysatryggingar, sjúkratryggingar, elli- og örorkutryggingar og atvinnuleysistryggingar. Taka ber þá fram að tryggingasjóðir urðu til á síðari hluta 19. aldar, söfnunarsjóður Íslands var stofnaður 1888, lög um styrktarsjóð fyrir alþýðufólk voru sett 1890, lög um almennan ellistyrk 1909, fyrsta sjúkrasamlagið var stofnað 1897, Sjúkrasamlag Reykjavíkur 1909, fyrsti vísirinn að slysatryggingum varð til árið 1903 með bótasjóði sjómanna og lög um slysatryggingar komu árið 1925. „Í lok 19. aldar og í upphafi þeirrar tuttugustu er verið að formfesta aðstoð sem samfélagið veitir þeim sem þurfa á stuðningi að halda. Á þessum tíma búa flestir í sveitum og þéttbýlismyndun að hefjast. Fyrra stríðið hafði vissulega einnig áhrif á aðstæður og kreppan í kjölfarið,“ segir Huld um upphafið.

Heildargreiðslur 2025 um 250 ma. kr.
Á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur frá TR. Fjölgunin milli ára var 2,5%, sem endurspeglar lýðfræðilega þróun samfélagsins sem og aukna eftirspurn eftir stuðningi, sérstaklega vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á síðasta ári.
„Lagarammi almannatrygginga í dag nær að mínu mati ágætlega utan um þann hóp sem við erum að þjóna. Kerfið byggist á meginreglunni um búsetutryggingu, sem þýðir að aðild að almannatryggingum og réttindi til greiðslna byggjast fyrst og fremst á lögheimili og raunverulegri búsetu hér á landi. Að þeir sem eiga rétt fái það sem þeim ber er leiðarljósið í starfi okkar. Lögin í dag ná utan um ellilífeyrisgreiðslur sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, auk örorkulífeyris og stuðnings við börn og barnafjölskyldur. Það er til dæmis mikilvægur málaflokkur sem athyglin beinist sjaldnast að,“ segir Huld.

Kerfið er norrænt
Kerfi almannatrygginga á Íslandi er um margt svipað og annars staðar á Norðurlöndunum hvað varðar réttindi og þjónustu. Útfærslan er þó misjöfn. Munurinn felst einkum í því hvernig einstök réttindi og greiðslur eru útfærð, hvernig kerfin eru fjármögnuð og hvernig ábyrgð á þjónustu skiptist milli ríkis og sveitarfélaga.
„Ísland hefur sótt innblástur til Norðurlandanna í gegnum tíðina. Á síðustu árum má nefna aukna áherslu á stafræna þjónustu, samræmingu milli landa í gegnum norrænt og evrópskt samstarf og útfærslur á ICF-matskerfinu. Segja má að íslenska kerfið þróist að mörgu leyti í takt við það sem gerist hjá hinum Norðurlandaþjóðunum, þó að hver þjóð haldi sínum sérkennum,“ segir Huld og getur þess að sitthvað hafi breyst með nýjum lögum um almannatryggingar sem sett voru á síðasta ári. Þeim hafi til dæmis fylgt nýir greiðsluflokkar, samhæfingarhópar verið stofnaðir um allt land og nánara samstarf milli þjónustuaðila svo sem TR, Virk, heilbrigðisstofnana og sveitarfélaga komst á.
„Þetta var ein stærsta breyting í almannatryggingum í fjölda ára. Við þurftum að fara í mikla þróun á nýjum tölvukerfum. Jafnframt krafðist nýja kerfið mikillar fræðslu og kynningar af okkar hendi,“ tiltekur Huld. Í starfinu hjá TR segir hún að gildi tengingar við kerfi Skattsins, lífeyrissjóða, sveitarfélaga og banka; upplýsingaflæði svo að greiðslur til þeirra sem fái séu réttar. „Það myndi bæta mikið þjónustu okkar ef við hefðum samtímaupplýsingar um greiðslur frá viðeigandi aðilum. Þetta er kostnaðarsamt og flókið, svo sem vegna persónuverndarsjónarmiða. Ef við næðum góðum og gagnlegum tengingum myndi skilvirkni aukast og TR gæti greitt samkvæmt samtímagögnum, sem drægi úr misræmi greiðslna og réttinda.“

Nýgengið lækkar
Undanfarin ár hefur sífellt meiri áhersla verið lögð á endurhæfingu hjá TR, með endurkomu á vinnumarkað að leiðarljósi. Ábatinn af því þykir mikill, greiðslur úr opinberum sjóðum til endurhæfingar skila sér fljótt til baka, að ekki sé talað um aukin lífsgæði þeirra sem njóta.
„Eins og þarfir eru mismunandi er alls konar endurhæfing í boði og fólk í því ferli getur sótt um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Með því getur fólk sett fókus á að ná heilsu og eiga endurkomu á vinnumarkað. Við sjáum með þessu að nýgengi örorku lækkar og færri fara á örorku eftir að endurhæfingu lýkur, sem þýðir að endurhæfing er að skila árangri,“ segir Huld að lokum.