Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Rúmlega 500 fagaðilar hafa sótt námskeið hjá TR

30. janúar 2026

Samhliða innleiðingu á nýju örorku- og sjúkra- og endurhæfingarkerfi 1. september 2025 hefur TR haldið ellefu námskeið um nýja kerfið sem rúmlega 500 fagaðilar hafa sótt.

Um er að ræða fagmenntað heilbrigðisstarfsfólk sem starfar meðal annars innan félagsþjónustu sveitarfélaga, heilsugæslunnar og annarra heilbrigðisstofnana auk hagsmunasamtaka. Fyrstu námskeiðin voru haldin í maí 2025 og það ellefta og síðasta að sinni í þessari viku. Starfsfólk TR hefur séð um fræðsluna ásamt fulltrúa frá Vinnumálastofnun.

Það er ánægjulegt að segja frá því að mikil ánægja hefur verið með námskeiðin, sem öll voru haldin í húsakynnum TR í Hlíðasmára.