Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi – bein útsending 1. september kl. 11:00
29. ágúst 2025
Í tilefni þess að nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi 1. september verður streymi úr Grósku mánudaginn 1. september kl. 11:00 þar sem farið verður yfir þær umbætur sem nýja kerfið hefur í för með sér.

Tímamót: Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi
Bein útsending mánudaginn 1. september kl. 11:00 á stjornarradid.is
Dagskrá
Ávarp ráðherra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
Ný hugmyndafræði með nýju kerfi
Huld Magnúsdóttir, forstjóri TR
Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir, sviðsstjóri örorkusviðs hjá TR
Svanbjörg Berg Sigmarsdóttir, sviðsstjóri endurhæfingarsviðs hjá TR
Aukin atvinnutækifæri
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar
Aukin endurhæfing
Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs
Aukin samvinna
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Fundarstjóri:
Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Viðburðurinn verður í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.