Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Norrænir forstjórar almannatryggingastofnana á Íslandi

16. október 2026

Á fundi norrænna forstjóra almannatrygginga, sem var haldin hér á landi í byrjun október kom skýrt fram hversu svipaðar áskoranir þessar stofnanir eru að takast á við. Þar eru helstar gervigreind og stafræn umbreyting, sjálfbærni almannatryggingakerfanna, sífelldar breytingar á starfsumhverfi, ný hæfniþörf og baráttan gegn röngum greiðslum og svikum.

Fulltrúar á fundi forstjóra norrænna almannatryggingastofnana 1. – 2. október 2026, sem TR skipulagði.

Gervigreind og stafræn umbreyting

Umfjöllun um gervigreind og stafræna umbreytingu snerist bæði um hvernig nýta mætti nýja tækni og þau tækifæri sem gefast til að endurhugsa ferla í starfsemi stofnanna frá grunni. Almannatryggingastofnanirnar standa að mörgu leyti frammi fyrir sömu spurningum um ábyrgð, öryggi, lagaleg álitaefni og hvernig hægt sé að nýta tæknina þannig að hún skili raunverulegu virði fyrir notendur og samfélagið.

Hraðar breytingar í starfsumhverfi stofnananna voru eitt af sameiginlegu viðfangsefnunum. Kröfur um hraðari og betri þjónustu aukast samhliða örri tækniþróun. Umræðan sýndi þó einnig þörfina fyrir skýrari langtímasýn og stefnumörkun frá stjórnvöldum. Stofnanirnar þurfa að vita hvert er stefnt og innan hvaða ramma þær eiga að nýta nýja tækni, þannig að breytingarnar skili tilætluðum ávinningi.

Frá tækni yfir í samfélagslegar áskoranir

Á fundinum var einnig rýnt í ferlið frá veikindum eða brotthvarfi af vinnumarkaði yfir í endurhæfingu og mögulega endurkomu til vinnu. Snemmtæk íhlutun og samstarf almannatryggingastofnana, heilbrigðiskerfis og atvinnurekenda voru meðal lykilatriða sem rætt var um í því ferli. Staða ungs fólks utan vinnu og náms var einnig rædd sérstaklega og horft til reynslu NAV í Noregi hvað þetta varðar.

Markmiðið með samtali milli forstjóra norrænna almannatryggingastofnan er meðal annars að samstarfið leiði bæði til aukinnar þekkingarmiðlunar sem og markvissari samvinnu um þau viðfangsefni sem löndin eiga sameiginleg.

Tryggingastofnun skipulagði fundinn, en forstjórar norrænna almannatryggingastofnana koma saman árlega og er fundurinn haldinn á fimm ára fresti hér á landi.